FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Aðstoð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli

28.04.2010 by Ólafur Magnússon

Hreinsunarstarf

Sett hafa verið upp tvö skráningarform vegna hjálparstarfs um helgina, annað fyrir laugardag og hitt fyrir sunnudag.  

Eldra skráningarformið hefur verið fellt niður og nú hvetjum við menn sem geta og vilja aðstoða við hreinsunar- og lagfæringarstarf undir Eyjafjöllum að skrá sig á þann dag sem fólk getur komið.  Þeir sem hafa skráð sig áður þurfa að skrá sig aftur ef það kemst annanhvorn daginn.  Þeir sem vilja mæta báða dagana skrá sig tvisvar, einusinni á hvort form.

Okkur hafa enn ekki borist nánar upplýsingar frá vegvangsstjórninni, en gera má ráð fyrir að þörf verði á aðstoð og því hefjum við skráningar strax.  Við biðjum aðeins þá sem geta komist að skrá sig svo við vitum þann fjölda sem er í boði hvorn daginn fyrir sig.

 

Filed Under: Stjórn

Aðstoð vegna eldgossins í Eyjafjallajökli

23.04.2010 by Ólafur Magnússon

Ágætu félagsmenn
Ferðaklúbburinn 4×4 hefur sent sýslumanninum á Hvolsvelli boð um aðstoð klúbbsins við björgunar og/eða hreinsunarstarf á öskufallssvæðinu.
Þeir sem hafa áhuga og vilja til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar, ef til kemur,  eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á skráningarformi klúbbsins hér.

Filed Under: Stjórn

Skráning hafin í marsferð Litlunefndar

18.03.2010 by Ólafur Magnússon

GPSUm leið og við óskum stóru bílunum góðrar ferðar hefjum við skráningu í gps-ratleik Litlunefndar sem fer fram laugardaginn 27. mars n.k.

Um er að ræða dagsferð og ekki hægt að segja frá ferðatilhögun, þar sem um ratleik er að ræða.  Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst frá því sem ákveðið hefur verið, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.

Það kostar ekkert að taka þátt og allir eru velkomnir, bæði félagsmenn og aðrir. Litlunefndarferðir miðast við lítið breytta og óbreytta jeppa og eru engar takmarkanir á því svo lengi sem jeppinn hefur hátt og lágt drif.  Ákvarðanir fararstjóra um leiðarval og fleira miðast við þetta.

Ekki er nauðsynlegt að vera með gps tæki til að taka þátt í leiknum, en óneitnalega er skemmtilegra fyrir þátttakendur að hafa slíkt tæki til að geta fylgst með.

Filed Under: Litlanefnd

GPS Námskeið

09.03.2010 by Ólafur Magnússon

ATÁ döfinni er að Arctic Trucks í samstarfi við Litlunefndina haldi námskeið í rötun og notkun GPS tækja.  Námskeið er tvískipt, fyrri hlutinn, grunnnámskeið er 2 kvöld og verður það 22. og 23. mars n.k.  Síðari hlutinn er framhaldsnámskeið og verður það 30. mars n.k.

Við hvetjum félaga okkar til að sækja þetta námskeið.  Næsta Litlunefndarferð, sem verður 27.mars n.k. verður í formi ratleiks og þá er nauðsynlegt að geta notað gps tækið sitt fljótt og örugglega.  Dagsetningar námskeiðanna miða einmitt við þessa ferð.

Filed Under: Litlanefnd

Skráning hafin í febrúarferð Litlunefndar

12.02.2010 by Ólafur Magnússon

Frá Kerlingafjöllum www.kerlingafjoll.isLitlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 20. febrúar n.k. og er skráning hafin.

Áætluð leið liggur frá Reykjavík um Geysi og Gullfoss inn á Kjalveg og upp í Kerlingafjöll og næsta nágrenni.  Áætlað er að halda til byggða við Geysi.  Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.

Það kostar ekkert að taka þátt og allir eru velkomnir, bæði félagsmenn og aðrir. Litlunefndarferðir miðast við lítið breytta og óbreytta jeppa og eru engar takmarkanir á því svo lengi sem jeppinn hefur hátt og lágt drif.  Ákvarðanir fararstjóra um leiðarval og fleira miðast við þetta.

Undirbúnings og kynningarfundur verður í húsnæði ferðaklúbbsins að Eirhöfða, á opnu húsi, fimmtudagskvöldið 18. febrúar, kl. 20:30. Á kynningarfundinum verður farið yfir leiðaval og helstu öryggisatriði kynnt, auk grunnnámskeiðs í jeppamennsku fyrir þá sem hafa áhuga á því.

 

Filed Under: Litlanefnd

Ferð Litlunefndar á Langjökul 16. janúar 2010

20.01.2010 by Ólafur Magnússon

Þetta er fjölmennasta ferð Litlunefndar frá upphafi.  Svo mikil ásókn var í skráningar að það þurfti að loka fyrir skráningar fyrr en áætlað var, vegna þess að ekki voru nægilega margir farar- og hópstjórar skráðir til að ferðin gæti verið örugg.  

Filed Under: Litlanefnd

Upplýsingar um ferð Litlunefndar

15.01.2010 by Ólafur Magnússon

Hér er að finna upplýsingar um ferð Litlunefndarinnar á morgun

Filed Under: Litlanefnd

Skráningu lokað í janúarferð Litlunefndar !

08.01.2010 by Ólafur Magnússon

Litlanefnd á LangjökliAthugið að skráningum hefur verið lokað í janúarferð Litlunefndar.  45 bílar hafa skráð sig til þátttöku auk fararstjóra og ekki séð að sá fjöldi fararstjóra sem við höfum yfir að ráða hafi yfirsýn yfir stærri hóp.  Því hefur skráningum verið lokað.

 Munið eftir að í kvöld er kynningarfundur í í félagsheimili F4X4 að Eirhöfða 11.  Fyrir þátttakendur kl. 20:30 og fyrir fararstjóra kl.  20:00.

Litlanefnd 

Filed Under: Litlanefnd

Skráning hafin í nóvemberferð Litlunefndar

14.11.2009 by Ólafur Magnússon

Úr síðustu ferð, HungurfitsleiðLitlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 21. nóvember n.k.  

Áætluð leið liggur frá Þingvöllum á Gjábakkaveg, að „vörðunni“ og inn á svæðið í kring um Skjaldbreið.  Áætlað er að halda til byggða við Þingvöll.  Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.

Filed Under: Litlanefnd

Skráning hafin í októberferð Litlunefndar

22.10.2009 by Ólafur Magnússon

Þrætt milli kletta á HungurfitsleiðLitlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 31. október n.k.  Við ætlum að fara svokallaða Hungurfitsleið. 

Áætluð leið liggur frá Hvolsvelli, inn Fljótshlíð eftir Emstruleið að Markarfljótsgljúfrum, en þar verður stoppað og gljúfrin skoðuð.  Við förum svo aftur inn á Emstruleið og þaðan inn á Hungurfitsleiðina við Markarfljótsgljúfur (N63 46.726 W19 25.188), skammt sunnan Mosa. Þaðan til vesturs í Þverárbotna, en þar stoppum við, borðum nesti og hvílum okkur á akstrinum.  Eftir nestisstop förum við norður að Krók (N63 49.919 W19 24.441), siðan nánast beint til vestur að Hungurfitsskála (N63 50.547 W19 32.833) og þaðan inn á Fjallabaksleið Syðri (N63 51.304 W19 34.210). Áætlað er að halda þaðan til byggða við Keldur (N63 49.486 W20 05.212).  Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.
Það kostar ekkert að taka þátt og allir eru velkomnir, bæði félagsmenn og aðrir. Litlunefndarferðir miðast við lítið breytta og óbreytta jeppa eru engar takmarkanir á því svo lengi sem jeppinn hefur hátt og lágt drif.  Ákvarðanir fararstjóra um leiðarval og fleira miðast við þetta.

Filed Under: Litlanefnd

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.