Skráning hafin í októberferð Litlunefndar
Litlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 23. október n.k. Farið verður malbikið að Keldum, austan Hellu, en þegar malbikinu sleppir verður mýkt í dekkjum fyrir áframhaldið. Við stefnum á að fara eftir fyrri hluta Fjallabaksleiðar Syðri, norður fyrir Laufafell. Þaðan förum við í Hrafntinnusker. Frá Hrafntinnuskeri förum við upp og yfir þúsundmetrahólinn og þá niður Pokahrygg yfir á Landmannaleið. Við fylgjum svo Landmannaleið á Landveg, þar sem ferðinni verður slitið.
Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.
Skráning er hafin og lýkur henni miðvikudagskvöldið 20. október n.k.
Skráning hafin í Haustlitaferð Litlunefndar
Litlanefndin mun halda í Þórsmörk í dagsferð laugardaginn 25. september n.k. Farið verður malbikið að Seljalandsfossi, en þegar malbikinu sleppir verður mýkt í dekkjum fyrir áframhaldið. Við stefnum á að fara í Bása, stoppa þar og borða nesti. Síðan munum við skoða vöðin á Krossá bæði í Langadal og Húsadal. Höldum svo til baka og endum ferðina við Seljalandsfoss. Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.
Skráning er hafin og lýkur henni fimmtudagskvöldið 23. september n.k.
Skráning í ferðina „SMELLA HÉR“
Linkur á spjallþráð „smella hér“
Landgræðsluferð Umhverfisnefndar
Birkisöfnunarferð Umhverfisnefndar Ferðaklúbbsins 4×4 verður á morgun, laugardag. Farið verður frá Shell Select við Vesturlandsveg kl.11.00 og keyrt að tjaldstæðinu Sandártungu í Þjórsárdal, þar sem við hittumst kl.13. Unnið verður við söfnunina í 3 til 4 klukkustundir og reynt verður að safna eins miklu af birkifræjum og hægt er. Ef fólk er á ferðinni í Þjórsárdal og vill taka þátt, þá má hringja í Diddu í síma 694 8862.
Við vonumst til að sjá sem flesta félaga.
Kveðja, Umhverfisnefnd
Hjálparbeiðni frá Vík í Mýrdal
Félagar !!!
Haft hefur verið samband við klúbbinn vegna hreinsunarstarfs í Vík í Mýrdal. Til stendur að hreinsa í kring um íbúðarhús í þorpinu og á bæjum í kring. Um er að ræða hreinsun á þakrennum, tröppum, gluggum oþh. Slökkviliðið mun svo verða á staðnum til að spúla.
Unnið verður laugardag og sunnudag.
Þeir sem vilja leggja Mýrdælingum lið í þeirra erfiðu baráttu, vinsamlegast senda tölvupóst á olafurmag@gmail.com sem fyrst !
Einnig vantar enn 1-2 í girðingarvinnu á Steinum undir Eyjafjöllum.
Kv. Óli
Aðstoð á öskufallssvæðinu á laugardaginn kemur – girðingarvinna
Það vantar 2-4 fríska félaga til að aðstoða við girðingarvinnu á bóndabæ undir Eyjafjöllum á laugardaginn kemur. Þeir sem eru til í þetta, vinsamlegast senda tölvupóst á olafurmag@gmail.com eða hringja í 844 4247.
Kv. Óli
Bið á hreinsunarstarfi
Borist hefur tölvupóstur frá vettvangsstjórninni undir Eyjafjöllum. Ekki er þörf fyrir sjálfboðaliða í hreinsunarvinnu á svæðinu um þessar mundir, en haft verður samband við okkur ef þörf verður síðar. Það verður því ekkert af hreinsunarstarfi um helgina.
Hreinsunarstarf um helgina
Reiknað er með að Ferðaklúbburinn 4×4 fái beiðni um aðstoð við hreinsunarstarf um helgina. Sett hefur verið upp skráningarform, þar sem hægt er að skrá sig til þáttöku, hvort sem er á laugardag eða sunnudag. Allir sem geta eru hvattir til að mæta, það er mikil þörf fyrir okkar aðstoð bæði við hreinsunarstarfið sjálft og eins til að sýna okkar stuðning.
Hreinsunarstarfi frestað
Félagar athugið
Búið er að hafa samband frá vettvangsstjórninni undir Eyjafjöllum og vegna mikils öskufalls á svæðinu hefur öllu hreinsunarstarfi um helgina verið frestað um óákveðinn tíma. Talið er að þau séu nú komin á byrjunarreit varðandi öskumagn og hreinsunarstarf.
Heimamenn undir Eyjafjöllum vilja geta átt hauk í horni í klúbbnum okkar og vilja geta leitað til okkar með aðstoð þegar það verður mögulegt aftur. Þessvegna hafa verið sett upp ný skráningarform vegna hreinsunarvinnu um næstu helgi.
Íbúar undir Eyjafjöllum eru þakklátir að vita til þess að þeir standa ekki alveg einir í þeim miklu hremmingum sem þeir eru að lenda í og að eiga að góða aðila eins og Ferðaklúbbinn 4×4 er ómetanlegt.
Ég hvet fólk að leggja aðrar áætlanir til hliðar með það í huga að aðstoða við hreinsunarstarf um næstu helgi.
Beiðni hefur borist um hreinsunarstarf
Sælir félagar
Okkur hefur borist hjálparbeiðni austan undan Eyjafjöllum. Óskað er eftir aðstoð okkar við að sinna hreinsunarstarfi á laugardaginn kemur, 1. maí , en ekki er óskað eftir aðstoð á sunnudag.
Það er þörf á ca. 30 manns frá okkur, nú þegar eru skráðir 9 í 7 bílum svo ljóst er að einhverjir geta tekið farþega ef þörf er á því.
Vinnan á laugardag er fyrst og fremst fólgin í hreinsun ösku við bæina. Vinsamlegast takið afstöðu sem fyrst, við þurfum að skila frá okkur upplýsingum um fjölda í hádeginu á morgun, föstudag.