Ólafur Magnússon – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is FERÐAKLÚBBURINN 4X4 Mon, 30 Mar 2020 09:23:24 +0000 is-IS hourly 1 https://wordpress.org/?v=4.4.27 Myndakvöld Litlunefndar https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-3/ https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-3/#respond Wed, 25 Apr 2012 10:24:28 +0000 http://f4x4.valid.is/myndakvold-litlunefndar-3/ Myndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á morgun, fimmtudaginn 26. apríl í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4.  Húsið opnar kl. 20:00 og eru allir velkomnir. Allir sem fóru í afmælisferð Litlunefndar í Landmannalaugar eru hvattir til að mæta með myndir úr ferðinni. Þetta er síðasta myndakvöld Litlunefndar á þessu starfsári.

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Litlanefnd í LandmannalaugumMyndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á morgun, fimmtudaginn 26. apríl í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4.  Húsið opnar kl. 20:00 og eru allir velkomnir.

Allir sem fóru í afmælisferð Litlunefndar í Landmannalaugar eru hvattir til að mæta með myndir úr ferðinni.

Þetta er síðasta myndakvöld Litlunefndar á þessu starfsári.

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-3/feed/ 0
Myndakvöld Litlunefndar https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-2/ https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-2/#respond Wed, 25 Apr 2012 10:20:12 +0000 http://f4x4.valid.is/myndakvold-litlunefndar-2/ Myndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á morgun, fimmtudaginn 26 apríl í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4.  Húsið opnar kl. 20 og eru allir velkominir. Allir sem fóru í afmælisferðina í Landmannalaugar eru hvattir til að mæta með myndir til að sýna öðrum og sjá hvaða myndir aðrir vilja sýna. Þetta er síðasta myndakvöld Litlunefndar á þessu starfsári.

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Litlanefnd í LandmannalaugumMyndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á morgun, fimmtudaginn 26 apríl í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4.  Húsið opnar kl. 20 og eru allir velkominir.

Allir sem fóru í afmælisferðina í Landmannalaugar eru hvattir til að mæta með myndir til að sýna öðrum og sjá hvaða myndir aðrir vilja sýna.

Þetta er síðasta myndakvöld Litlunefndar á þessu starfsári.

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-2/feed/ 0
Afmælisferð Litlunefndar https://old.f4x4.is/afmaelisferd-litlunefndar/ https://old.f4x4.is/afmaelisferd-litlunefndar/#respond Sun, 22 Apr 2012 14:19:30 +0000 http://f4x4.valid.is/afmaelisferd-litlunefndar/ Að morgni fimmtudagsins 19. apríl s.l. hittust eigendur um 60 jeppa á Stöðinni við Vesturlandsveg.  Tilefnið var 10 ára afmlisferð Litlunefndar í Landmannalaugar.  Fyrsta ferð Litlunefndar var einmitt farin í Landmannalaugar í mars 2002. Eins og venja er var hópnum skipt í minni hópa og hélt hver hópur af stað þegar hann var fullmannaður.  Leiðin […]

The post Afmælisferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
Hópstjórar í Landmannalaugum

Að morgni fimmtudagsins 19. apríl s.l. hittust eigendur um 60 jeppa á Stöðinni við Vesturlandsveg.  Tilefnið var 10 ára afmlisferð Litlunefndar í Landmannalaugar.  Fyrsta ferð Litlunefndar var einmitt farin í Landmannalaugar í mars 2002.

Eins og venja er var hópnum skipt í minni hópa og hélt hver hópur af stað þegar hann var fullmannaður.  Leiðin lá upp Þjórsárdal og að Hrauneyjum, en flestir stoppuðu þar augnablik áður en haldið var af stað eftir Sigölduleiðinni.  Veður var fallegt og færið sérlega gott fyrri hluta dagsins, en snjór í minna lagi. Enda fór svo að fyrstu bílar voru komnir að skálunum við Landmannalaugar fyrir klukkan 13.  Áð var nokkuð lengi í Laugum enda veður ótrúlega gott og var ekki haldið til baka fyrr en um kl. 16, en þá voru minnstu bilarnir komnir nokkru fyrr.
Ákveðið var að freista þess að fara Dyngjuleið og um Valagjá til baka, en þegar komið var að gatnamótunum að Valagjá var því breytt og farið um Áfangagil.  Þegar líða tók á daginn þyngdist færið allverulega enda mikil snjóbráð í sterkri vorsólinni.  Dró þá nokkuð úr ferðahraða minni bílanna og þurftu þeir á einhverri aðstoð að halda í gegn um skaflana.
Komust allir að lokum niður á Landveg og héldu hver til síns heima.  Ekki urðu neinar bilanir í þessari ferð sem heitið getur, nema að einn bíll fór að hita sig á þjóðveginum.  Snéri sá við og hélt til baka.  Í einum bíl fór hjólalega í nálægð við Hrauneyjar og snéri hann einnig við og náði að komast heilu og höldnu til baka.  Að lokum fór hjólalega í bíl þegar komið var að borgarmörkunum á heimleið.  Var skipt um legu á staðnum og náði viðkomandi að komast heim.  Annars var þetta ein allra besta ferð Litlunefndar mtt. veðurs og færis og þess fjölda bíla sem fór með.
Litlanefndin þakkar þeim sem komu að þessari ferð, sem hópstjórar, fréttaritarar og auðvitað þeim sem komu með okkur til að ferðast.  Það var líka skemmtilegt að nokkrir eldri Litlunefndarmenn komu með sem heiðursfararstjórar.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir frábæran ferðavetur.  Myndakvöld verður á fimmtudagskvöldið 26. apríl n.k. en eftir það förum við í sumarfrí og tökum svo upp þráðinn aftur með spennandi ferðum í haust og næsta vetur.
Myndir úr ferðinni:

The post Afmælisferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]> https://old.f4x4.is/afmaelisferd-litlunefndar/feed/ 0 Marsferð Litlunefndar 2012 https://old.f4x4.is/marsferd-litlunefndar-2012/ https://old.f4x4.is/marsferd-litlunefndar-2012/#respond Sun, 18 Mar 2012 12:01:28 +0000 http://f4x4.valid.is/marsferd-litlunefndar-2012/ Laugardaginn 17. mars fór Litlanefndin í mánaðarlega dagsferð sína.  Í ferðinni voru um 50 bílar í 6 hópum, þar á meðal hópur frá starfsmannafélagi Strætó.  Stefnan var tekin á Skjaldbreiðarsvæðið og var ákveðið að breyta svolítið til í þetta sinn og fara sunnanfrá í stað þess að fara Kaldadalsveg og línuvegin eins og oft er […]

The post Marsferð Litlunefndar 2012 appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
Úr LitlunefndarferðLaugardaginn 17. mars fór Litlanefndin í mánaðarlega dagsferð sína.  Í ferðinni voru um 50 bílar í 6 hópum, þar á meðal hópur frá starfsmannafélagi Strætó.  Stefnan var tekin á Skjaldbreiðarsvæðið og var ákveðið að breyta svolítið til í þetta sinn og fara sunnanfrá í stað þess að fara Kaldadalsveg og línuvegin eins og oft er gert, meðal annars í janúarferð Litlunefndar.
Farið var á Þjónustumiðstöðina á Þingvöllum þar sem gert var stutt stopp áður en farið var upp á nýja Lyngdalsheiðarveginn.  Af honum var haldið yfir á gamla veginn og komst hópurinn mjög fljótlega í snjó, þétt og gott færi.  Það tók nokkurn tíma að komast upp að vörðu, margir sem þurftu að hleypa úr og átta sig á hvernig best er að keyra í því færi sem boðið var uppá.  Veður var ekkert sérstakt um morguninn, reyndar var nokkuð bjart yfir, en frekar hvasst og nokkur skafrenningur.  Kalt var úti og kólnaði eftir því sem leið á daginn, en jafnframt lygndi og var hið besta veður yfir daginn, ekki hægt að hugsa sér það betra.  Færið var einnig fullkomið og eftir að komið var upp að vörðu var fátt sem stoppaði hópinn, hægt var að keyra um allt og nýttu menn sér það vel.  Einn bíll var ekki að ráða við færið, en hann affelgaði við vörðuna og reyndist vera með felgur sem réðu illa við úrhleypingar.  Einn öryggisbíllinn fylgdi honum því til baka, gaf honum loft og sendi svo heim, en öryggisbíllinn snéri svo við, elti hópinn og náði honum við Skjaldbreið.  Einhverjir höfðu þá farið að Tjaldafelli og fengið sér nesti en aðrir fóru af stað upp fjallið Skjaldbreið.  Allir reyndu við fjallið en í um 800 mys kom belti með mjög þungu færi þar sem skildi á milli bíla.  Nokkrir fóru alla leið á toppinn, aðrir stoppuðu og nutu útivistar í fjallinu.

The post Marsferð Litlunefndar 2012 appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]> https://old.f4x4.is/marsferd-litlunefndar-2012/feed/ 0 Skráning hafin í marsferð Litlunefndar https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-marsferd-litlunefndar-2/ https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-marsferd-litlunefndar-2/#respond Sat, 10 Mar 2012 09:07:18 +0000 http://f4x4.valid.is/skraning-hafin-i-marsferd-litlunefndar-2/ Litlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 17. mars n.k. og er skráning hafin. Áætluð leið liggur frá Reykjavík, að Þingvöllum, upp á nýja Lyngdalsheiðarveginn.  Þaðan verður farið um Gjábakkaveg sunnan Skjaldbreiðar og svæðið þar um kring eftir aðstæðum og ákvörðunum fararstjóra.  Áætlað er að halda til byggða við Þingvelli.  Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti […]

The post Skráning hafin í marsferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Mynd: Hörður Bjarnason

Litlanefndin heldur í dagsferð laugardaginn 17. mars n.k. og er skráning hafin.

Áætluð leið liggur frá Reykjavík, að Þingvöllum, upp á nýja Lyngdalsheiðarveginn.  Þaðan verður farið um Gjábakkaveg sunnan Skjaldbreiðar og svæðið þar um kring eftir aðstæðum og ákvörðunum fararstjóra.  Áætlað er að halda til byggða við Þingvelli.  Gera verður ráð fyrir að ferðatilhögun geti breyst, þar með talið að ferðinni verði frestað eða hún felld niður vegna óhagstæðrar veðurspár, eða af öðrum ástæðum, samkvæmt ákvörðun fararstjóra.

Það kostar ekkert að taka þátt og allir eru velkomnir, bæði félagsmenn og aðrir. Litlunefndarferðir miðast við lítið breytta og óbreytta jeppa og eru engar takmarkanir á því svo lengi sem jeppinn hefur hátt og lágt drif.  Ákvarðanir fararstjóra um leiðarval og fleira miðast við þetta.

Skráning er hafin og lýkur henni miðvikudagskvöldið 14. mars n.k. Það kvöld verður einnig kynningarfundur fyrir skráða þátttakendur.  Mikilvægt er að sækja þennan kynningarfund.

 

The post Skráning hafin í marsferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]> https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-marsferd-litlunefndar-2/feed/ 0 Litlanefnd í Kerlingarfjöll https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll/ https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll/#respond Mon, 20 Feb 2012 22:16:32 +0000 http://f4x4.valid.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll/ Laugardaginn 18. febrúar s.l. lögðu um 30 bílar á vegum Litlunefndar frá Stöðinni við Vesturlandsveg.  Skeljungur bauð 10 kr. afslátt af eldsneyti í tengslum við þessa ferð og erum þeim færðar bestu þakkir fyrir.  Hópnum var skipt í þrennt.  Tveir hópar vorum með bíla frá 35″ upp í 46 sá stærsti, en síðasti hópurinn samanstóð […]

The post Litlanefnd í Kerlingarfjöll appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Litlanefnd í Kerlingarfjöllum

Laugardaginn 18. febrúar s.l. lögðu um 30 bílar á vegum Litlunefndar frá Stöðinni við Vesturlandsveg.  Skeljungur bauð 10 kr. afslátt af eldsneyti í tengslum við þessa ferð og erum þeim færðar bestu þakkir fyrir.  Hópnum var skipt í þrennt.  Tveir hópar vorum með bíla frá 35″ upp í 46 sá stærsti, en síðasti hópurinn samanstóð af óbreyttum eða mjög lítið breyttum jeppum.
Haldið var yfir Mosfellsheiði á Þingvelli, þaðan yfir Lyngdalsheiði á Geysi en þar var stoppað, því þar var síðasti möguleikinn á eldsneyti áður en haldið var til fjalla.  Síðan var ekið upp á Kjalveg og þar sem malbikinu sleppti var mýkt í dekkjum og ekið áfram.  Varla vorum við lögð af stað eftir úrhleypingar fyrr en Kerlingarfjallamenn höfðu samband og lýstu leiðinni og erfiðleikum sem hægt væri að búast við.  Einnig buðust þeir til að koma á móti okkur og leiðbeina yfir Blákvísl, því venjulega vaðið væri ófært.  Þeir eru Öðlingar í Kerlingarfjöllum.  Fyrsta hindrun var í gilinu við Grjótá, skafl sem þó var búið að gera í för og reyndist því vera auðveldara en á horfðist í fyrstu.  Stærri hóparnir fóru þetta nokkuð létt og upp að Beinakerlingu á Bláfellshálsi.  Litli hópurinn var aðeins lengur á leiðinni og þurfti svolítið að kippa í stöku bíl.  Frá Bláfellshálsi að Hvítá var svell á veginum og mikil hálka þrátt fyrir frostið, en á milli voru góðir skaflar.  Þegar komið var yfir Hvítárbrúnna var fljótlega ekið út af veginum enda allt frosið og góður, þéttur snjór yfir öllu.  Ekið var nánast í beinni línu að Fremriskúta og þaðan nánast í beinni línu að Innriskúta í afbragðsgóðu færi.  Minni bílarnir áttu þó í heldur meira brasi, en komust þó inn til móts við Árbúðir þar sem þeir fundur góða brekku til að leika sér í, áður en þeir tóku ákvörðun um að snúa við.

The post Litlanefnd í Kerlingarfjöll appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]> https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll/feed/ 0 Litlanefnd fær viðurkenningu frá Félagi heyrnarlausra https://old.f4x4.is/litlanefnd-faer-vidurkenningu-fra-felagi-heyrnarlausra/ https://old.f4x4.is/litlanefnd-faer-vidurkenningu-fra-felagi-heyrnarlausra/#respond Fri, 10 Feb 2012 22:34:03 +0000 http://f4x4.valid.is/litlanefnd-faer-vidurkenningu-fra-felagi-heyrnarlausra/ Föstudaginn 10. febrúar s.l. var Litlunefnd Ferðaklúbbsins 4×4 veitt viðurkenning fyrir frumkvöðlastarf í þágu heyrnarlausra, en eins og flestir félagsmenn vita hefur Litlanefndin átt í góðu samstarfi við heyrnarlausa og margir þeirra komið með okkur í ferðir. Litlanefndin er stolt og ánægð að hafa fengið þessa viðurkenningu en hún sýnir svo ekki verður um villst […]

The post Litlanefnd fær viðurkenningu frá Félagi heyrnarlausra appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Guðmundur veitir viðurkenningunaFöstudaginn 10. febrúar s.l. var Litlunefnd Ferðaklúbbsins 4×4 veitt viðurkenning fyrir frumkvöðlastarf í þágu heyrnarlausra, en eins og flestir félagsmenn vita hefur Litlanefndin átt í góðu samstarfi við heyrnarlausa og margir þeirra komið með okkur í ferðir.

Litlanefndin er stolt og ánægð að hafa fengið þessa viðurkenningu en hún sýnir svo ekki verður um villst að starfið hefur borið þann árangur sem lagt var af stað með.

kv. Litlanefnd

 

The post Litlanefnd fær viðurkenningu frá Félagi heyrnarlausra appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/litlanefnd-faer-vidurkenningu-fra-felagi-heyrnarlausra/feed/ 0
Myndakvöld Litlunefndar https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar/ https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar/#respond Thu, 26 Jan 2012 12:29:34 +0000 http://f4x4.valid.is/myndakvold-litlunefndar/ Myndakvöld Litlunefndar verður í kvöld, fimmtudagskvöld á opnu húsi í félagsheimili klúbbsins.  Allir velkomnir og þeir sem voru í ferðinni um síðustu helgi eru sérstaklega hvattir til að mæta með sínar myndir og deila með öðrum.        

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Janúarferð Litlunefndar 2012Myndakvöld Litlunefndar verður í kvöld, fimmtudagskvöld á opnu húsi í félagsheimili klúbbsins.  Allir velkomnir og þeir sem voru í ferðinni um síðustu helgi eru sérstaklega hvattir til að mæta með sínar myndir og deila með öðrum.

 

 

 

 

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar/feed/ 0
Janúarferð Litlunefndar 2012 https://old.f4x4.is/januarferd-litlunefndar-2012/ https://old.f4x4.is/januarferd-litlunefndar-2012/#respond Sun, 22 Jan 2012 17:20:08 +0000 http://f4x4.valid.is/januarferd-litlunefndar-2012/ Milli 50 og 60 bílar lögðu upp í Litlunefndarferð frá Stöðinni við Vesturlandsveginn laugardaginn 21. janúar s.l.  Stöðin bauð okkur uppá kaffi og kleinur í upphafi ferðar, á meðan ferðalöngum var raðað í hópa og fólk gerði sig klárt. 

The post Janúarferð Litlunefndar 2012 appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
Á línuveginumMilli 50 og 60 bílar lögðu upp í Litlunefndarferð frá Stöðinni við Vesturlandsveginn laugardaginn 21. janúar s.l.  Stöðin bauð okkur uppá kaffi og kleinur í upphafi ferðar, á meðan ferðalöngum var raðað í hópa og fólk gerði sig klárt. 

The post Janúarferð Litlunefndar 2012 appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]> https://old.f4x4.is/januarferd-litlunefndar-2012/feed/ 0 Litlanefnd með heyrnarlausum https://old.f4x4.is/litlanefnd-med-heyrnarlausum/ https://old.f4x4.is/litlanefnd-med-heyrnarlausum/#respond Sun, 04 Dec 2011 17:31:05 +0000 http://f4x4.valid.is/litlanefnd-med-heyrnarlausum/ Laugardaginn 3. desember s.l. fór Litlanefnd ásamt nokkrum félögum úr hópstjóragenginu í dagsferð með félagi Heyrnarlausra.  Nokkrir úr þeirra hópi voru á eigin bíl, reyndar aðeins 3 þegar til kom, en aðrir fengu far með okkar bílum.  Stefnan var tekin á Kaldadal og Langjökul.  Færið var gríðarþungt, mikið frost og snjór þjappaðist ekkert.  Mjög erfiðlega […]

The post Litlanefnd með heyrnarlausum appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Við MeyjarsætiLaugardaginn 3. desember s.l. fór Litlanefnd ásamt nokkrum félögum úr hópstjóragenginu í dagsferð með félagi Heyrnarlausra.  Nokkrir úr þeirra hópi voru á eigin bíl, reyndar aðeins 3 þegar til kom, en aðrir fengu far með okkar bílum.  Stefnan var tekin á Kaldadal og Langjökul.  Færið var gríðarþungt, mikið frost og snjór þjappaðist ekkert.  Mjög erfiðlega gekk að komast upp brekkuna við Meyjarsæti.  Þar höfðu 38″ bílar snúið frá í miðri brekku og beið okkar það hlutverk að komast þar yfir með óbreytta bíla.  Okkur tókst að troða leiðina upp með 44″ bíl í 3-4 pundum og lóló.  Smám saman tókst 38″ bílum að fylgja förunum, eftir að þeir höfðu hleypt niður í 0,5 – 2 pund eftir bílum.  Reynt var að aka förin nokkrum sinnum til að þjappa og gekk það vel.  Loks tókst að koma öllum upp, en þeir minnstu þurftu að þiggja spotta til að klára brekkuna.

Var næst haldið að línuveginum og þyngdist færið smám saman eftir því sem við nálguðumst gatnamótin að Skjalbreiðarvegi.  Við gatnamótin var stoppað og bauð Félag heyrnarlausra þar upp á nesti og urðu allir saddir og sælir þar.  Var ákveðið að freista þess að komast áfram eftir Kaldadalsvegi en eftir mikið nudd og hæga yfirferð var snúið við áður en hópurinn komst að neyðarskýlinu. 

Einn okkar frábæru hópstjóra í Litlunefnd, Pétur Hans, er ættaður úr Skorradalnum og tók hann að sér að leiða hópinn á Uxahryggjaleið og þaðan yfir í botn Skorradals.  Var leiðin nokkuð þung og farið var að dimma, en þessi óvænti útúrdur var í raun toppur ferðarinnar.  Þegar komið var til byggða skammt innan Skorradalsvatns við bæinn Fitjar var pumpað í dekk og síðan haldið sem leið lá eftir þjóðveginum að Borgarfjarðarbrú.  Þaðan var var svo ekið fyrir Hafnarfjallið, göngin og til höfuðborgarinnar.

Litlanefndin þakkar hópustjórum aðstoðina og ferðalöngum öllum samveruna.

The post Litlanefnd með heyrnarlausum appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/litlanefnd-med-heyrnarlausum/feed/ 0