FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Helgarferð Skemmti- og Skálanefndar í Setrið

07.02.2012 by Logi Már Einarsson

Helgina 24. – 26. febrúar næstkomandi ætla skemmti og skálanefnd Ferðaklúbbsins að standa fyrir ærslaferð í Setrið, skála Ferðaklúbbins 4×4.

Ferðin er hugsuð fyrir félagsmenn þ.e. lágmarkið er að hver og einn bílstjóri sé félagsmaður og æskilegt að sá sem með honum ferðast sé einnig meðlimur í F4x4 en þó ekki ófrávíkjanlegt skilyrði.

Verðið er kr. 5000 pr. haus og skal greiðsla hafa borist fyrir 20. febrúar.  Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir tilskilinn tíma fellur viðkomandi út af listanum.  Innifalið er gisting í tvær nætur ásamt lúxusmáltíð á laugardagskvöldinu og er verðið það sama hvort sem gist er eina nótt eða tvær.  Upplýsingar um innborgunarreikning verða sendar út síðar í þessari viku.  Dagskráin er enn í mótun en við lofum góðri skemmtun og stemmingu sem enginn ætti að vera svikinn af.

Reiknum með að selja að hámarki 45 miða svo vel fari um alla gesti á meðan á sameiginlega borðhaldinu stendur.

Skráningin er í gegnum spjallþráð eða með því að senda tölvupóst á skalanefnd@f4x4.is og er það tímasetningin á pöntuninni sem ræður því hvar maður hafnar á skráningalistanum.

Skálanefnd/Skemmtinefnd F4x4.

Filed Under: Fréttir

SETRIÐ, OPIÐ HÚS.

31.08.2011 by Logi Már Einarsson

Áður auglýst opið hús í Setrinu verður haldið laugardaginn tíunda september.  Gott tækifæri til að fá sér bíltúr og skoða breytingarnar á skálanum, skálanefndarmenn kynna breytingar á ljósavélarmálum skálans ásamt því að sýna afrakstur vinnu sumarsins.  Boðið verður upp á kaffi og vöfflur ásamt því að þeir félagsmenn sem mæta gista frítt á laugardeginum.  Stofnaður verður spjallþráður þar sem þeir sem hyggjast mæta eru beðnir um að tilkynna komu sína og skrá fjölda gesta eða hringja í undirritaðann í síma 844-5010 eða 893-6560.  Hittumst og eigum góða stund saman, grillið góða verður á sínum stað til afnota fyrir alla sem mæta.

F.h. skálanefndar.  Logi Már.

Filed Under: Skálanefnd

Fréttir af Skálanefnd Seturs

26.07.2011 by Logi Már Einarsson

Sælt veri fólkið.

Skálanefnd hefur staðið í ströngu undanfarið og farið upp í Setur í vinnuferðir þrjár helgar í röð.  Höfum við félagarnir lengt helgarnar og verið að fara á fimmtudagskvöldum og náð tveimur heilum vinnudögum út úr helginni.  Aðra helgina í júlí var farið í að mála þak og kláraðist það en mála þarf þakið á Setunni og verður væntanlega reynt við það í vinnuferðinni í ágúst. Einnig var byrjað að rífa innan úr vélarrými gámsins og byggja það upp að nýju.  Þriðju helgina í júlí var haldið áfram með vélarrýmið og farið í að leggja miðstöðvakerfið fram á klósett og voru rafmagnsofnarnir sem þar voru teknir  niður og venjulegir settir í staðinn og tengdir kerfinu frá kamínunni.  Nokkuð mál var að koma bakrásinni fyrir og þurfti að taka hana undir húsið með tilheyrandi greftri og veseni en hafðist að lokum.  Kerfið var einnig tæmt og kamínan var tekin í bæinn og yfirfarin inni í Funa og reykrörið frá henni lagfært.   Um síðustu helgi var svo almenn vinnuferð en mæting almennra félagsmanna  var mjög dræm  og mætti einn með okkur á fimmtudagskvöldið og tveir komu seinnipartinn á laugardegi.  Þó náðist að setja kamínuna upp og klára miðstöðvakerfið og koma hita á húsið aftur.  Nýja rafstöðin okkar fór einnig uppeftir á fimmtudagsnóttina, við fengum hana afhenta eftir breytingu hjá fyrirtækinu Hafás milli átta og níu á fimmtudagskvöldið og var hún sett beint á klúbbkerruna og keyrð uppeftir.  Var hún átta til níu vikum á eftir áætlun vegna tafa á afhendingu frá framleiðanda.  Það ber að taka fram að Vélasalan kom einstaklega vel fram við okkur í þessu máli og kom vel til móts við okkur vegna tafanna sem þeir sjálfir áttu þó enga sök á.  Hafist var handa við að koma vélinni inn í vélarrýmið á föstudagsmorgunn og var hún komin á sinn stað fljótlega upp úr hádeginu og byrjað að ganga frá staðsetningu og tengingum.  Á laugardagskvöldið var svo tekið „test run“ á hana og virkaði allt sem virka þurfti, eftir er samt að fínstilla hlutina.  Pústkerfi var tengt til bráðabirgða, eftir er að ganga endanlega frá því og einnig að ganga frá kælirörum sem annars vegar taka inn kalt loft og hins vegar taka heita loftið frá vélinni og koma því út.  Þegar allt verður frágengið verður vélin keyrð í lokuðu rými þ.e. hurðin á gámnum skal höfð lokuð.  Rýmið sem hún er í hefur nú einnig verið hljóðeinangrað svo sem tök eru á.  Reiknað er með að gegnið verði frá því sem eftir er að ganga frá í vinnuferðinni tólfta til fjórtánda ágúst og þá verði vélin tilbúin til notkunar.  Einnig má geta þess að sökkul skálans sem snýr að aðkeyrslu hans hefur nú verið klæddur með pallaefni og er nú ásjóna hússin öll önnur þegar komið er að því.  Fyrirhugað er síðan að hafa opið hús í Setrinu og kynna félagsmönnum þær breytingar sem gerðar hafa verið á skálanum og bjóða upp á vöfflur að hætti hússins og fría gistingu en það verður auglýst nánar síðar. Við í nefndinni viljum þakka þeim aðstoðina sem þó hafa komið að starfinu með okkur í sumar.

Logi Már.  Skálanefnd Seturs.

Filed Under: Skálanefnd

Rafstöð, óskum eftir aðstoð félagsmanna.

23.03.2011 by Logi Már Einarsson

Skálanefnd Seturs óskar eftir upplýsingum frá félagsmönnum um hvort einhver gæti lumað á lítilli dísilrafstöð þetta fjögur til fimm kílóvött sem við getum fengið leigða eða lánaða til að halda vatni og ljósum á skálanum þar til nýja ljósavélin kemur í hús.  Allar upplýsingar vel þegnar og má koma þeim á framfæri við skálanefndarmenn í gegnum póstfangið  skalanefnd@f4x4.is  eða í síma skálanefndar, 844-5010.

Skálanefnd.

Filed Under: Skálanefnd

In memorian.

22.03.2011 by Logi Már Einarsson

Látin er í Setrirnu, Deutz Ligthmotor.   Deutz Ligthmotor var fædd í Þýskalandi í kringum miðja síðustu öld en flutti fljótlega til Íslands og hóf störf hjá Landssímanum sem þá var og starfaði þar megnið af sinni starfsævi sem varaaflgjafi við góðan orðstý en lét síðan af störfum þar á seinni hluta ævinnar og hóf störf sem raforkustjóri í Setrinu, skála Ferðaklúbbsins 4×4.  Stóð jafnan nokkur styrr um störf hennar á þeim vettvangi.  Deutz Ligthmotor var jafnan heilsuhraust en á síðustu árum ævinnar tók að bera á ýmsum krankleikum í heilsufari hennar svo sem verða vill með þá sem komnir eru á efri ár en með góðri heilsugæslu var henni unnt að halda áfram sínu daglega lífi þar til yfir lauk.  Það var svo að morgni sunnudagsins 20. mars síðastliðinn að menn urðu varir við að verulega var af henni dregið og lést hún skömmu síðar, sinnandi skyldu sinni fram í andlátið.  Ekki er vitað nákvæmlega hvernig dauða hennar bar að garði en grunurinn beinist að ákveðnu vökvatapi sem mun hafa átt sér stað þá um nóttina.  En blessuð sé minning Deutz Lightmotor og er nánustu ættingjum hér með vottuð samúð.  Ákveðið hefur verið að við starfi hennar taki Lister Generator  sem kemur frá Bretlandi, gagngert til að taka við hlutverki hennar.  Lister þessi er nákominn ættingi þess Lister sem gegndi störfum raforkustjóra í Setrinu á undan Lightmotor og í beinan kvenlegg  af henni komin.  Þar sem jafnan var vel látið af störfum hennar í Setrinu væntum við mikils af störfum þessa nákomna ættingja fyrrverandi raforkustjóra.  Er hún væntaleg á næstu vikum en í millitíðinni verður reynt að fá íhlaupastarfsmann til að sjá um að halda orkumálum Setursins gangandi.  Nánar verður tilkynnt um þá tilhögun þegar ljóst verður hvernig þau mál verða leyst. 
Fyrir hönd ættingja Deutz Ligtmotor.
Logi Már Einarsson.  Formaður skálanefndar.

Filed Under: Skálanefnd

BJÓRKVÖLD Á HÖFÐANUM

09.02.2011 by Logi Már Einarsson

Bjorkvöld verður haldið á Höfðanum föstudaginn 11. febrúar.  Húsið opnar kl. 20:00.  Tllvalið að kíkja við og segja félögunum sögur af nýliðnu þorrablóti í Setrinu og skrá sig í Stórferðina í leiðinni. 

Skemmtinefnd.

Filed Under: Tilkynningar

BJÓRKVÖLD Á HÖFÐANUM

08.02.2011 by Logi Már Einarsson

Filed Under: Stjórn

Ágústferð skálanefndar, fréttir.

30.08.2010 by Logi Már Einarsson

Vinnuferð var farin á vegum skálanefndar Seturs helgina 28. til 29. ágúst sl.  Til hennar mættu á endanum fjórir frá skálanefnd ásamt þremur fullorðum, einum ungling og einu barni.  Á föstudagskvöldinu gistu með okkur í skálanum sex hjólamenn og yfirgáfu þeir skálann á laugardagsmorgninum og létu vel af húsakosti og vist.  Tekið var vel til hendinni þessa helgi.  Grafið var fyrir pallaundirstöðum framan við skálann og steyptir niður staurar og smíðaður pallur fyrir framan klósettin og að inngangi norðanmegin og mun það gera allt aðgengi að skálanum mun betra.  Eftir er að klæða dekkið á pallinn og verður það gert í ferð sem áformuð er í lok setember. Bráðabirgðaklæðning var sett á pallinn sunnanmegin þar sem alltaf er gengið inn á sumrin og er því aðgengið gott þeim megin en óklætt er norðanmegin og eru þeir sem eru á ferðinni þarna beðnir um að taka tillit til þess.  Ráðist var í þakmálningu, náðist að skrapa þakið á skálanum og grunna í blettina en ekki náðist að mála endanlega þar sem rigning setti strik í reikninginn.  Ekki er því víst að málningarvinna klárist fyrir veturinn úr því sem komið er.  Rennsli í klósettkassana virðist nú komið í lag eftir að formaður skálanefndar fór hamförum inni á klósettunum og reif allt í tætlur, boraði, græjaði og gerði og tókst á einhvern óskiljanlegan hátt að klúðra öllu saman aftur þannig að það virkaði.  Einnig var tekið til í kringum skálann og er nú aðkoma að honum þokkaleg.  Tveir gluggar í risi gamla skálans sem eftir var að mála að utan voru síðan skrapaðir og málaðir.  Afrek helgarinnar hlýtur samt að teljast sú framkvæmd að klára þakkant hússins, sem hefur verið ófrágegninn síðan klósettviðbyggingin var byggð og er nú ásjóna hússins allt önnur og fallegri.  Ekki má gleyma að nefna að yngsti þáttakandinn í ferðinni, hún Herdís Ásta tók sig til og málaði nokkra steina á planinu af miklum dugnaði.  Á laugardagskvöldinu var svo grillað að hætti skálanefndar og tóku menn vel til matar og hóflega til drykkjar.  Í heildina séð höldum við í skálanefnd að húsið sé nú að verða þokkalega búið fyrir veturinn og ætti hverjum þeim sem telja sig til fjallamanna ekki að vera nokkur vorkunn að gista þar.  Skálanefnd vill þakka þeim ofvirku einstaklingum sem tóku þátt í þessari vinnuferð fyrir frábært framlag til skálans og vonast til að njóta krafta þeirra seinna meir.

 F.h. skálanefndar,  Logi Már.

Filed Under: Skálanefnd

Smá fréttapistill frá Skálanefnd.

14.08.2010 by Logi Már Einarsson

Skálanefnd hélt fund nýlega þar sem málefni skálans og rekstrargrundvöllur voru meðal annars rædd.  Farið var yfir það sem búið er að framkvæma við Setrið í sumar og hvað er óframkvæmt af verkefnalista sumarsins sem sífellt virðist bætast á eftir því sem farið er betur yfir málin.  Í framhaldi af því var ákveðið að fara í vinnuferð helgina 27 til 29 ágúst og freista þessa að grynnka eitthvað á listanum.  Þetta verður opin vinnuferð og vinnufúsar hendur því velkomnar og vel þegnar.  Ljósavélin hefur aðeins verið að hrekkja okkur undanfarið svo sem sést hefur á tilkynningum frá skálanefnd en hefur nú komist í lag á ný og gengur vonandi hrekklaust áfram en eitt af fyrstu verkefnum nýrrar skálanefndar var að leita tilboða í nýja vél og voru tilboðin lögð fyrir stjórn.  Þau mál eru nú í athugun og ákvörðunar vonandi að vænta innan tíðar.  Í júlí voru skálaverðir til staðar í um vikutíma í skálanum, þau hjónakornin Guðmundur góði og Hulda.  Lítil umferð var á þeim tíma sem þau voru þar en þó komu þau tveimur hjólamönnum til aðstoðar þar sem annar hafði fallið og hnjaskast eitthvað og ákváðu þeir að gista eina nótt meðan sá þeirra sem hafði fallið var að jafna sig.  Einn tjaldaði utan skálans á þessum tíma og notfærði sér aðstöðu skálans.  Undirritaður var svo á staðnum síðustu daga júlímánaðar og kláraði að bera á palla skálans ásamt því að taka aðeins til hendinni á planinu og laga pallinn við Zetuna,  negla hann upp og bera á hann.  Gísli Þór hefur svo verið með tilfallandi skálavörslu í júlí og ágúst þar sem hann hefur verið mikið á ferðinni á Kerlingarfjallasvæðinu vegna vinnu og hefur hann dittað að ýmsu.  Einnig hefur það komið sér mjög vel að á meðan hann hefur haft setu í skálanum hafa allnokkrir gist og nokkuð hefur rukkast inn af skálagjöldum.  Aðstoð hans vegna viðgerðar ljósavélarinnar hefur einnig verið vel þegin og þökkuð.  Í september hafa tveir hópar bókað gistingu, annars vegar er um tuttugu manna hópur sem gistir aðfaranótt 4. september og hins vegar um 40 manna hópur sem gistir eina nótt helgina 18. -19. september.  Von okkar í skálanefnd stendur til þess að eftir næstu vinnuferð verði ástand og aðstaða skálans orðin í það góðu lagi að engum vandkvæðum ætti að vera bundið að gista þar en þó má lengi gera betur. 

Með kveðju. 

Logi Már / Skálanefnd.

Filed Under: Skálanefnd

Tilkynning frá Skálanefnd!

12.08.2010 by Logi Már Einarsson

Lokið er við viðgerð á raftöð Setursins og er nú aftur vatn og rafmagn í húsinu. 

Logi Már.

Filed Under: Tilkynningar

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.