Litlanefnd F4x4 – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is FERÐAKLÚBBURINN 4X4 Mon, 30 Mar 2020 09:23:24 +0000 is-IS hourly 1 https://wordpress.org/?v=4.4.27 Skráning hafin í ferð Litlunefndar í Kerlingarfjöll 9. nóvember. https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-ferd-litlunefndar-i-kerlingarfjoll-9-november/ https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-ferd-litlunefndar-i-kerlingarfjoll-9-november/#respond Fri, 01 Nov 2013 11:23:27 +0000 http://f4x4.valid.is/skraning-hafin-i-ferd-litlunefndar-i-kerlingarfjoll-9-november/ Nú er búið að opna skráningarform fyrir ferð Litlunefndar í Kerlingarfjöll þann 9. nóvember næstkomandi. Langtímaspáin er góð og því er allt útlit fyrir skemmtilega og vel heppnaða Litlunefndarferð að þessari perlu á milli Hofsjökuls og Langjökuls. Búið er að opna skráningarsvæði á vefnum og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst. Frestur […]

The post Skráning hafin í ferð Litlunefndar í Kerlingarfjöll 9. nóvember. appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Nú er búið að opna skráningarform fyrir ferð Litlunefndar í Kerlingarfjöll þann 9. nóvember næstkomandi. Langtímaspáin er góð og því er allt útlit fyrir skemmtilega og vel heppnaða Litlunefndarferð að þessari perlu á milli Hofsjökuls og Langjökuls.

Búið er að opna skráningarsvæði á vefnum og hvetjum við alla til að skrá sig sem fyrst. Frestur til skráningar rennur út miðvikudaginn 6. nóvember klukkan 22:00.

Kynningarfundur vegna ferðarinnar verður haldin í félagsheimili ferðaklúbbsins að Eirhöfða 11 klukkan 20:00 miðvikudaginn 6. nóvember.

Skráningarsíðuna má finna hér.

https://old.f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=285

Athugið að velja almenna skráningu þar sem hópstjóraskráningin er eingöngu ætluð fyrir fyrirfram skilgreinda hópstjóra Litlunefndar. Ef þið hafið hins vegar komið með okkur í einhverjar ferðir og hafið hug á að gerast hópstjórar, þá vinsamlegast sendið póst á Litlunefndina.

 

The post Skráning hafin í ferð Litlunefndar í Kerlingarfjöll 9. nóvember. appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-ferd-litlunefndar-i-kerlingarfjoll-9-november/feed/ 0
Litlanefnd í Kerlingarfjöll https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll-2/ https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll-2/#respond Tue, 29 Oct 2013 22:17:36 +0000 http://f4x4.valid.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll-2/ Næsta ferð Litlunefndar verður farinn þann 9. nóvember næstkomandi. Að þessu sinni er stefnan sett á Kerlingarfjöll. Að sögn kunnugra er kominn einhver snjór á þessum slóðum og frostaspá framundan. Það er því allt útlit fyrir góða ferð og hvetjum við alla til að skrá sig í ferðina, en opnað verður fyrir almenna skráningu á […]

The post Litlanefnd í Kerlingarfjöll appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Næsta ferð Litlunefndar verður farinn þann 9. nóvember næstkomandi. Að þessu sinni er stefnan sett á Kerlingarfjöll. Að sögn kunnugra er kominn einhver snjór á þessum slóðum og frostaspá framundan. Það er því allt útlit fyrir góða ferð og hvetjum við alla til að skrá sig í ferðina, en opnað verður fyrir almenna skráningu á föstudaginn 1. nóvember.

Bestu kveðjur og sjáumst hress

Litlanefndin

The post Litlanefnd í Kerlingarfjöll appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-kerlingarfjoll-2/feed/ 0
Myndakvöld Litlunefndar https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-5/ https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-5/#respond Tue, 01 Oct 2013 15:53:22 +0000 http://f4x4.valid.is/myndakvold-litlunefndar-5/ Myndakvöld Litlunefndar verður haldið á opnu húsi fimmtudaginn 3. október í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4.  Húsið opnar kl. 20:00 og eru allir velkomnir. Allir sem fóru í síðustu ferð Litlunefndar í Hungurfit eru hvattir til að mæta með myndir úr ferðinni. Til að flýta fyrir myndasýningunni er gott er að taka aðeins til í myndum og eyða […]

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
Myndakvöld Litlunefndar verður haldið á opnu húsi fimmtudaginn 3. október í félagsheimili Ferðaklúbbsins 4×4.  Húsið opnar kl. 20:00 og eru allir velkomnir.
Allir sem fóru í síðustu ferð Litlunefndar í Hungurfit eru hvattir til að mæta með myndir úr ferðinni. Til að flýta fyrir myndasýningunni er gott er að taka aðeins til í myndum og eyða út endurteknum og ónýtum áður en komið er með myndirnar.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti á myndakvöldinu.

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-5/feed/ 0
Myndakvöld Litlunefndar https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-4/ https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-4/#respond Wed, 20 Mar 2013 12:47:20 +0000 http://f4x4.valid.is/myndakvold-litlunefndar-4/ Litlanefndin þakkar þátttakendum og fararstjórum fyrir stórskemmtilega en jafnframt lærdómsríka ferð í Landmannalaugar á laugardaginn. Þátttakan var mjög góð, um 50 bílar og komust allir bílar inn í Laugar í björtu og góðu veðri, en köldu. Ekki komust samt allir bílar heilir heim samdægurs og getum við dregið góðan og ganglegan lærdóm af því. Við […]

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Litlanefndin þakkar þátttakendum og fararstjórum fyrir stórskemmtilega en jafnframt lærdómsríka ferð í Landmannalaugar á laugardaginn. Þátttakan var mjög góð, um 50 bílar og komust allir bílar inn í Laugar í björtu og góðu veðri, en köldu. Ekki komust samt allir bílar heilir heim samdægurs og getum við dregið góðan og ganglegan lærdóm af því.

Við munum halda myndakvöld með myndum úr ferðinni í opnu húsi fimmtudaginn 21. mars klukkan 20:00 í félagsheimili klúbbsins að Eirhöfða 11 og eru allir velkomnir. Fólk er hvatt til að taka sínar myndir með á lykli og verða þær sýndar. Gott er samt að renna yfir myndirnar og grisja misheppnaðar og endurteknar myndir út til að flýta fyrir.

Við hvetjum alla til að mæta og sjáumst hress annað kvöld

Kveðja, Litlanefndin

 

The post Myndakvöld Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/myndakvold-litlunefndar-4/feed/ 0
Litlanefnd í Landmannalaugar 16. mars https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-landmannalaugar-16-mars/ https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-landmannalaugar-16-mars/#respond Thu, 07 Mar 2013 22:47:10 +0000 http://f4x4.valid.is/litlanefnd-i-landmannalaugar-16-mars/ Marsferð Litlunefndar, taka 2. Þá er loksins kominn vetur hérna á Klakanum, að minnsta kosti á hálendinu. Langtímaspáin fyrir Fjallabakssvæðið er mjög góð fram yfir 16. mars og því hefur Litlanefndin sett stefnuna á Landmannalaugar, laugardaginn 16. mars næstkomandi. Skráning í ferðina hefur þegar verið sett upp á vefnum og hana má nálgast hér. Við […]

The post Litlanefnd í Landmannalaugar 16. mars appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Marsferð Litlunefndar, taka 2.

Þá er loksins kominn vetur hérna á Klakanum, að minnsta kosti á hálendinu. Langtímaspáin fyrir Fjallabakssvæðið er mjög góð fram yfir 16. mars og því hefur Litlanefndin sett stefnuna á Landmannalaugar, laugardaginn 16. mars næstkomandi. Skráning í ferðina hefur þegar verið sett upp á vefnum og hana má nálgast hér.

Við hvetjum alla til að taka daginn frá, nýta tækifærið og skreppa með okkur upp í Laugar. Kynningarfundur fyrir ferðina verður haldin miðvikudaginn 13. mars klukkan 20:30 í húsnæði félagsins að Eirhöfða.

Sjáumst hress

Litlanefndin

The post Litlanefnd í Landmannalaugar 16. mars appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/litlanefnd-i-landmannalaugar-16-mars/feed/ 0
Litlunefndarferð 2. mars 2013 aflýst https://old.f4x4.is/litlunefndarferd-2-mars-2013-aflyst/ https://old.f4x4.is/litlunefndarferd-2-mars-2013-aflyst/#respond Fri, 22 Feb 2013 19:52:59 +0000 http://f4x4.valid.is/litlunefndarferd-2-mars-2013-aflyst/ Því miður verðum við að tilkynna ykkur að Litlunefndarferð sem átti að fara um næstu helgi hefur verið aflýst vegna afleitra veðurskilyrða og ófærðar. Svo virðist sem spár um kólnandi veður um miðja þessa viku muni ekki ganga eftir og því má reikna með að allt hálendið hér í nágrenninu verði ófært Litlunefndinni vegna krapa […]

The post Litlunefndarferð 2. mars 2013 aflýst appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Því miður verðum við að tilkynna ykkur að Litlunefndarferð sem átti að fara um næstu helgi hefur verið aflýst vegna afleitra veðurskilyrða og ófærðar. Svo virðist sem spár um kólnandi veður um miðja þessa viku muni ekki ganga eftir og því má reikna með að allt hálendið hér í nágrenninu verði ófært Litlunefndinni vegna krapa og-/eða drullu. Þar sem að það er ekki í anda Ferðaklúbbsins að leggja af stað í óvissu með stóran hóp af fólki né að taka áhættu með að fara um með stóran hóp af bílum á blautum vegum þar sem hætta er á skemmdum sjáum við okkur ekki fært annað en að aflýsa ferðinni sem átti að fara laugardaginn 2. mars.

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að um og eftir helgina á að koma mikið kuldaloft yfir landið og því eru líkur á að aðstæður á fjallvegum muni fara batnandi á næstunni. Við höfum því ákveðið að stefna á að ferðin verði farinn laugardaginn 16. mars næstkomandi og munum við þá auglýsa nýja skráningu þegar líður fram í næstu viku. Þið athugið að skráningar í aflýstu ferðina munu EKKI flytjast sjálfkrafa yfir í nýja ferð og því þurfa allir að skrá sig aftur sem hafa áhuga á að koma með okkur.

Bestu kveðjur í bili og sjáumst vonandi þann 16. mars næstkomandi.

Litlanefndin

The post Litlunefndarferð 2. mars 2013 aflýst appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/litlunefndarferd-2-mars-2013-aflyst/feed/ 0
Næsta ferð Litlunefndar https://old.f4x4.is/naesta-ferd-litlunefndar-2/ https://old.f4x4.is/naesta-ferd-litlunefndar-2/#respond Thu, 07 Feb 2013 22:50:05 +0000 http://f4x4.valid.is/naesta-ferd-litlunefndar-2/ Litlanefndin þakkar góða þátttöku í síðustu ferð. Því miður voru veðurguðirnir okkur ekki nógu hliðhollir á Langjökli, en þeir hafa nú lofað bót og betrun. Við erum því bjartsýnir á næstu ferð, og nokkuð vissir um að þetta trend, sem er gott veður á virkum dögum og lægðir um helgar, eigi eftir snúast við. Dagsetningin […]

The post Næsta ferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Litlanefndin þakkar góða þátttöku í síðustu ferð. Því miður voru veðurguðirnir okkur ekki nógu hliðhollir á Langjökli, en þeir hafa nú lofað bót og betrun.

Við erum því bjartsýnir á næstu ferð, og nokkuð vissir um að þetta trend, sem er gott veður á virkum dögum og lægðir um helgar, eigi eftir snúast við.

Dagsetningin næstu ferðar hefur verið ákveðin laugardaginn 2. mars. Leiðarval hefur ekki verið staðfest ennþá, en við stefnum á svæðið að Fjallabaki og- eða í nágrenni við Heklu. Skráning í ferðina mun hefjast hér á vefnum þann 21. febrúar og verður þá búið að ákveða leiðina.

Takið daginn frá, skráið ykkur á vefnum og sjáumst hress á kynningarfundi þann 27. febrúar næstkomandi.

Litlanefndin

The post Næsta ferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/naesta-ferd-litlunefndar-2/feed/ 0
Almenn skráning hafin í janúarferð Litlunefndar https://old.f4x4.is/almenn-skraning-hafin-i-januarferd-litlunefndar/ https://old.f4x4.is/almenn-skraning-hafin-i-januarferd-litlunefndar/#respond Thu, 10 Jan 2013 22:06:05 +0000 http://f4x4.valid.is/almenn-skraning-hafin-i-januarferd-litlunefndar/ Nú er almenn skráning hafin í janúarferð Litlunefndar. Eins og flestir hafa orðið varir við hafa veðurguðirnir ekki verið okkur hliðhollir í vetur hvað varðar vetrarfæri. Af þeim sökum höfum við í Litlunefndinnni ákveðið að breyta út af áður auglýstri ferðaáætlun. Ætlunin var að reyna við Skjaldbreið, en vegna snjóleysis er slíkt ekki mögulegt. Ekki […]

The post Almenn skráning hafin í janúarferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Nú er almenn skráning hafin í janúarferð Litlunefndar.

Eins og flestir hafa orðið varir við hafa veðurguðirnir ekki verið okkur hliðhollir í vetur hvað varðar vetrarfæri. Af þeim sökum höfum við í Litlunefndinnni ákveðið að breyta út af áður auglýstri ferðaáætlun. Ætlunin var að reyna við Skjaldbreið, en vegna snjóleysis er slíkt ekki mögulegt. Ekki er heldur útlit fyrir að bæti í snjóalög fram að 19. janúar og því er Skjaldbreiður úr sögunni. Hins vegar er langtímaveðurspáin mjög hagstæð hvað varðar ferðir á Langjökul þessa helgi. Spáð er frosti og rólegu veðri fram að ferðadegi og því eru miklar líkur á hörðu og góðu færi á jökulinn þennan dag, ef að veðurspár ganga eftir. Við stefnum því á Jaka og að fara upp á jökulinn þar og keyra örugga leið undir stjórn farastjóra upp á hábungu jökulsins.

Við hvetjum alla áhugasama til að taka frá daginn og koma með okkur í skemmtilega ferð á Langjökul. Skráningarformið má finna hér.

Kynningarfundur fyrir ferðina verður haldin í félagsheimili ferðaklúbbsins að Eirhöfða 11, miðvikudaginn 16. janúar klukkan 20:30. Að fundinum loknum verður svo boðið upp á stutt kynningarnámskeið í jeppamennsku.

Bestu kveðjur og sjáumst hress,

Litlanefndin

The post Almenn skráning hafin í janúarferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/almenn-skraning-hafin-i-januarferd-litlunefndar/feed/ 0
Janúarferð Litlunefndar https://old.f4x4.is/januarferd-litlunefndar/ https://old.f4x4.is/januarferd-litlunefndar/#respond Fri, 28 Dec 2012 13:45:23 +0000 http://f4x4.valid.is/januarferd-litlunefndar/ Litlanefndin óskar öllum ferðalöngum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir skemmtilega samveru á árinu sem er að líða. Næsta ferð Litlunefndar verður farinn þann 19. janúar næstkomandi og er hugmyndin að fara krefjandi ferð upp á Skjaldbreið.Skráning í ferðina hefst á nýju ári og verður auglýst nánar á vefnum þegar nær dregur. Áhugasamir takið daginn frá og […]

The post Janúarferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
Litlanefndin óskar öllum ferðalöngum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir skemmtilega samveru á árinu sem er að líða.
Næsta ferð Litlunefndar verður farinn þann 19. janúar næstkomandi og er hugmyndin að fara krefjandi ferð upp á Skjaldbreið.
Skráning í ferðina hefst á nýju ári og verður auglýst nánar á vefnum þegar nær dregur.
Áhugasamir takið daginn frá og farið að láta ykkur hlakka til.
Bestu kveðjur og hafið það gott um áramótin
Litlanefndin

The post Janúarferð Litlunefndar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/januarferd-litlunefndar/feed/ 0
Skráning hafin í nóvemberferð Litlunenfdar https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-novemberferd-litlunenfdar/ https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-novemberferd-litlunenfdar/#respond Sun, 11 Nov 2012 14:13:05 +0000 http://f4x4.valid.is/skraning-hafin-i-novemberferd-litlunenfdar/ Þá er skráning loksins hafin í nóvemberferð Litlunefndar sem farin verður laugardaginn 17. nóvember næstkomandi. Ferðin hefst við Stöðina á Vesturlandsvegi klukkan 8:30 þar sem raðað verður í hópa. Því næst verður lagt á malbikið og keyrt á Laugarvatn um Mosfellsheiði og Þingvelli. Við Laugarvatn verður svo keyrt upp Miðdalsfjall framhjá Gullkistu að Brúarskörðum þar […]

The post Skráning hafin í nóvemberferð Litlunenfdar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>

Þá er skráning loksins hafin í nóvemberferð Litlunefndar sem farin verður laugardaginn 17. nóvember næstkomandi.

Ferðin hefst við Stöðina á Vesturlandsvegi klukkan 8:30 þar sem raðað verður í hópa. Því næst verður lagt á malbikið og keyrt á Laugarvatn um Mosfellsheiði og Þingvelli. Við Laugarvatn verður svo keyrt upp Miðdalsfjall framhjá Gullkistu að Brúarskörðum þar sem upptök Brúará verða skoðuð, en þar sprettur áin út  úr berginu. Eftir stutt stopp verður svo ekið í átt að Hlöðufelli og farið vestur fyrir fjallið og upp á línuveginn. Þar tökum við svo stefnuna í austur og ökum um Mosaskarð og yfir Haukdalsheiði og komið niður Geysi þar sem ferð verður slitið.

Samkvæmt heimildum Litlunefndar er kominn einhver snjór á þetta svæði og því er útlit fyrir spennandi og skemmtilega ferð.

Skráning í ferðina fer fram hér og stendur yfir til miðvikudags 14. nóvember. Þá um kvöldið verður kynningarfundur um ferðina í húsakynnum ferðaklúbbsins að Eirhöfða 11 og hefst hún klukkan 20:30. Að kynningarfundinum loknum verður svo boðið upp á grunnnámskeið í jeppamennsku fyrir byrjendur þátttakendum að kostnaðarlausu.

Bestu kveðjur og sjáumst hress.
Litlanefndin

The post Skráning hafin í nóvemberferð Litlunenfdar appeared first on Ferðaklúbburinn 4x4.

]]>
https://old.f4x4.is/skraning-hafin-i-novemberferd-litlunenfdar/feed/ 0