Húsavíkurdeild STÓRFERÐ dagskrá
Ferðaklúbburinn 4×4 Húsavíkurdeild býður ferðafélögum STÓRFERÐAR uppá útsýnisferð Laugadaginn 24 mars. Farið verður upp frá Kröflu og norður að kraftmesta fossi Evrópu Dettifossi, þaðan að vítunum Litla og Stóravíti. Frá vítunum um Bóndólfsskarð að Þeystareykjum og niður að Hólasandi.
Áætlaður ferðatími er um 4-6 tímar um þennann stórkostlega hring. Brottför er frá Versluninni STRAX sem er í Reykjahlíðarhverfinu í Mývatnssveit kl 11.00. Ferðafélagar Húsavíkurdeildar munu leiða hópinn. Hægt er að tanka bílana við verslunina.
Þeir félagsmenn STÓRFERÐAR sem kynnu að hafa áhuga á þessari ferð vinsamlegast tilkynnið þátttöku í email: f4x4husavik@gmail.com fyrir fimmtudagskvöldið 22 mars.
Stjórn f4x4 Húsavíkurdeild.