Vegna uppfærslu verður vefur klúbbsins lokaður fyrir breytingar morguninn 21. maí og frameftir degi. Við biðjumst velvirðingar vegna óþæginda sem notendur verða fyrir vegna þessa.
Með bestu kveðju,
Vefnefnd
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
Vegna uppfærslu verður vefur klúbbsins lokaður fyrir breytingar morguninn 21. maí og frameftir degi. Við biðjumst velvirðingar vegna óþæginda sem notendur verða fyrir vegna þessa.
Með bestu kveðju,
Vefnefnd
Opið hús.
Kynningarfundur vegna ferðar á laugardag 17 maí með einstök börn.
Byrjar kl. 20,30
Nefndin
Á aðalfundi voru endurkjörnir í stjórn: Einar Birgir Kristjánsson formaður,Jónas Þ. Jónasson ritari og Ingvar Ríkharðsson gjaldkeri. Meðstjórnendur voru kjörnir Jón Björgólfsson og Andri Valur Pálsson.
Skálnefnd skipa: Jens Hilmarsson,Óskar Þór Guðmundsson og Arnór Ari Sigurðsson
Ferðanefnd: Ragnar Stefánsson,Heiðar Broddason og Andri Fannar Traustason
Fræðslufulltrúi: Grétar Karlsson
Sýningarnefnd: Eiður Ragnarsson og Hermann Ísleifsson.
Lokahóf og uppskeruhátíð nefnda verður föstudagskvöldið 9. maí næstkomandi.
Öllum nefndarmönnum er boðið að koma og verður boðið upp á veitingar eins og venjulega.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Fundur verður kl. 18:30 og verður hann eins stuttur og hægt er. Hver nefnd fær 10 mín. Framsögu og þarf þar að koma fram starf síðasta árs, framtíðarsýn og skipun næsta árs.
Eftir fund verður boðið upp á grillaða Búlluborgarar og drykk.
Kl. 20:30 verður síðan opið hús með tilheyrandi í boði skemmtinefndar.
Kannski verður hluti Stjórnarinnar með uppákomu, en því miður næst ekki öll hljómsveitin saman þar sem einstaklingar inn hljómsveitarinnar hafa verið uppteknir í sólóferli erlendis. En Tveir þeirra eru og hafa reynt að sigra Ameríkuna en Logi Ragnars fór í Evrópu tour. Engar sérstakar upplýsingar liggja fyrir um sigra í ferðunum.
En allt kemur þetta í ljós. Allavega takið með ykkur góða skapið og gerum þetta kvöld eftirminnilegt og fögnum góðu starfsári eins og okkur er einum lagið….
Stjórn og Skemmtinefn
Að sjálfsögðu er opið hjá Einari og co í allt kvöld.
Aðalfundur austurlandsdeildar verður haldinn í Slysavarnarhúsinu á Egilsstöðum 10 maí nk. kl 1500. (ath breyttan fundarstað og tíma).
Dagskrá fundarins:
Kosning fundarstjóra
Skýrsla stjórnar
Reikningar Deildarinnar lagðir fram
Kosning Stjórnar,skálanefndar,þorrablótsnefndar og fræðslunefndar ofl.
Önnur mál.
Kaffiveitingar
Níundi félagsfundur vetrarins verður haldinn á Hótel Natura (Loftleiðum)
Hefst fundurinn stundvíslega kl. 20:00
Dagskrá:
Kaffihlé verður um 21:00
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og kynna sér starfið framundan.
Stjórn 4×4
Auðvitað er opið hús Fimmtudaginn 1. Maí. Alvöru kvöldkaffi fyrir alla. opnað kl 20 00
Bleksterkt kaffi að hætti húsins, vatn fyrir alla.
Í tilefni nýrrar uppfærslu á sprungukortum jökla bjóða aðilar verkefnisins til opins hús í Garmin búðinni miðvikudaginn 26. mars milli 20:00 og 22:00. Eigendur GPS tækja geta kynnt sér sprungukortin og fengið leiðbeiningar við innsetningu þeirra í tækin sín. Á vefsíðunni www.safetravel.is má finna nýja uppfærslu kortanna en þar má einnig finna „þekktar, hættuminni leiðir“ yfir nokkra jökla. Þessu má hala niður og nýta við ferðalög sín á þessum jöklum. Allir hvattir til að mæta, kynna sér kort og leiðir og stuðla þannig að eigin öryggi og annara.