FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Opið hús 5 júní

04.06.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Kaffi og vínber. Ber af öllu !

húsnæðisnefndin og kaffinefndin.

Filed Under: Fréttir

Árleg landgræðsluferð F4x4

02.06.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Langræðslu og baggaferðir hafa verið árlegur og velsóttur viðburður ferðaklúbbsins, síðan á síðastu öld. Ferðin er að þessu sinni, eins og undanfarin ár, í Þjórsárdal, helgina 6-8. júní.

 

Við vekjum athygli á að hústrukkanefndin er með ferð í Þórsmörk, sömu helgi og ætti ekki að vera mikið úr vegi að renna við á báðum stöðum, fyrir þá sem það vilja.

 

Ferðartilhögun
Farið er í Þjórsárdal, á sama svæði og undanfarin ár. Ferðin er 6. júní – 8. júní. Fólki er í frjálst vald sett hvenær það kemur á svæðið en öll vinnan fer fram laugardaginn 7. júní. Þá er byrjað snemma dags og unnið vel fram að kaffileyti, eftir hádegi. Um kvöldið er grillveisla. Gisting og aðstaða á tjaldsvæðinu er frí fyrir þá sem taka þátt.

Sund
Eftir að vinnu lýkur á laugardag, síðdegis, er stefnt að sundferð í Árnes. Sjá frekari upplýsingar um laugina hér:

Tjalsvæðið
Þeir sem að taka þátt í ferðinni fá ókeypis tjaldstæði á tjaldstæðinu frábæra í Sandártungu (rétt norðan við brúna yfir Sandá, við Ásólfsstaði). Sjá frekari upplýsingar hér:

Grillveisla
Um kvöldið, laugardag, er grillveisla í boði umhverfisnefndar.

Skráning

Það er mikilvægt að skrá sig þar sem við þurfum að áætla magn fyrir grillveisluna.
Skráningarfrestur rennur út fimmtudagskvöld, 5. júní kl. 20:00.
Skráning er hafin í ferðina. Sjá hér:

Umhverfisnefnd F4x4.

Filed Under: Fréttir, Umhverfisnefnd

Hvítasunnuferð Hústrukka í Þórsmörk

01.06.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Ágætu félagar

Við viljum minna á  Hvítasunnuferð Hústrukka í Þórsmörk – Bása, 6.-9. júní.

Gert er ráð fyrir samfloti frá Hellu kl. 19:00 á föstudagskvöld, annars fer mæting í Básum eftir ástæðum hvers og eins.  Líklegt er að stjórnarmenn Hústrukkanefndarinnar geti ekki „stjórnað“ samflotinu inní Þórsmörk. Gott væri að einhver gæti lóðsað hópinn inn úr ef með þarf.

Ekki er um formlega dagskrá að ræða í Þórsmörk en markmiðið, eins og fyrr, er að njóta útivistar, samveru og gönguferða við allra hæfi. Samkvæmt norsku langtímaveðurspánni er útlit fyrir gott útivistarveður.  Vonumst til að sjá sem flesta og vinsamlegast látið boðin ganga til líklegra hústrukkafélaga.

 

Bestu kveðjur 

Hústrukkanefndin 

Hústrukkanefndin:     Grétar Hrafn Harðarson s: 892 1480

Trausti Kári Hansson s: 894 9529

Viggó Vilbogason s: 892 3245.

Filed Under: Fréttir

Opið hús 29 maí

29.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Nú stígum við upp og skundum á opið hús.

Hendum kannski nokkrum myndum á skjáinn !

Húsnefndin.

Filed Under: Fréttir

Cintamani býður afslátt til félagsmanna F4x4.

27.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Cintamani býður afslátt til félagsmanna F4x4.

Cintamani býður félagsmönnum Ferðaklúbbsins 4×4 í heimsókn í verslun sína í Bankastræti 7 miðvikudaginn 28 maí næstkomandi milli kl. 12 og 22.

Munið að hafa félagsskírteinið meðferðis.

Filed Under: Fréttir, Tilkynningar

Tilboð á topptjöldum til meðlima F4x4.

27.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Tilboð á topptjöldum til meðlima F4x4.

„Topptjald.is hefur ákveðið að bjóða félagsmönnum ferðaklúbbsins 4×4 10% afslátt af öllum vörum sínum, en Topptjald.is er umboðsaðili og flytur inn Autohome topptjöld sem eru þekkt víða um heim fyrir gæði og endingu. Skoðið úrvalið á www.topptjald.is og hafið samband til að fá bækling eða frekari upplýsingar um tjöldin.“

Filed Under: Fréttir, Tilkynningar

Opið hús 22 maí

22.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Opið í kvöld, vínber og myndir.

nefndin

Filed Under: Fréttir

Uppfærslu lokið á vef klúbbsins

21.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Uppfærslu vefsins er lokið og gekk vel.

Með bestu kveðju,
Vefnefnd

Filed Under: Fréttir, Vefnefnd

Uppfærslu lokið á vef klúbbsins

21.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Uppfærslu vefsins er lokið og gekk vel.

Með bestu kveðju,
Vefnefnd

Filed Under: Fréttir, Vefnefnd

Vefurinn lokaður morguninn 21. maí og frameftir degi

20.05.2014 by Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833

Vegna uppfærslu verður vefur klúbbsins lokaður fyrir breytingar morguninn 21. maí og frameftir degi.  Við biðjumst velvirðingar vegna óþæginda sem notendur verða fyrir vegna þessa.

Með bestu kveðju,
Vefnefnd

Filed Under: Fréttir, Vefnefnd

  • « Previous Page
  • 1
  • …
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • …
  • 17
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.