FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl frestað

12.04.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl verður frestað þangað til á morgun eða næsta mánudag þar sem Vatnajökulsfarar hafa ekki skilað sér heim sökum veðurs. En þeir eru á heimleið núna og koma heim í nótt.

Sent verður sms og fólk látið vita nánar varðandi fundinn.

Kveðja
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Vatnajökulsferð Vesturlandsdeildar

28.03.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Minnum á Vatnajökulsferðina sem farin verður helgina eftir páska, 9-11. apríl.
Frekari upplýsingar og skráning er hjá Flemming. flemming@fva.is

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur þriðjudaginn 16. mars

15.03.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Þar sem það er fundur í Reykjavík í kvöld vegna ferðarinnar „I hjólför aldamótanna“ hefur verið ákveðið að hafa fundinn á morgun, þriðjudaginn 16.mars.
Farið verður yfir kassann okkar góða sem inniheldur allt björgunardótið okkar. Bjössi og Óli ætla að fara yfir kassann og kenna okkur nokkur atriði sem gætu gagnast okkur ef eitthvað kemur upp á.
T.d. hvernig á að fara í beltið sem fylgir sigbúnaðinum og ýmislegt fleira.

Einnig verður rætt um Vatnajökulsferðina og ýmis félagsmál.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Þorrablótinu aflýst

16.02.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Sökum lélegrar þátttöku hefur verið ákveðið að hætta við árlegt þorrablót félagsins. Hugsanlega verður tekinn rúntur þennan dag. Það verður sent sms og póstur ef af því verður. 

Kv. Stjórnin

Filed Under: Vesturlandsdeild

Þorrablót Vesturlandsdeildar

01.02.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Þorrablót Vesturlandsdeildar verður haldið í Hólaskógi 19-21 febrúar.

Svæðið í kringum Hólaskóg er mjög svo skemmtilegt því hægt er að finna ferðir fyrir allar stærðir jeppa þannig að allir ættu að geta farið í ferð á laugardeginum!

Það var virkilega skemmtilegt síðast. Lenntum í smá ævintýri í ferðinni sem farin var á laugardeginum og eins var maturinn um kvöldið og félagsskapurinn auðvitað frábær.

Farið verður í ferð á laugardeginum eins og síðast og svo komið í Hólaskóg fyrir kvöldmat.

Verðið er:
5000 kr pr mann fyrir eina nótt og mat
7500 kr pr mann fyrir tvær nætur og mat
Það verður eitthvað ódýrari maturinn fyrir börn en þetta verður uppfært þegar sú tala kemur. 

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

Skráning og frekari upplýsingar eru hjá:
Bjössa s. 867-2241
Óla s. 869-3965
Sigga Hafsteins s. 893-0922

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 11. janúar

10.01.2010 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundur Vesturlandsdeildar verður haldinn í Jónsbúð mánudaginn 11. janúar kl 20:00.

Efni:
– Sýndar verða myndir frá ferðinni á Langjökul 2. janúar
– Þorrablótið. Hvar og hvenær???
– Vatnajökulsferð. Hvenær verður farið og þá jafnvel skráning.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Kv.
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 14. október

13.12.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Félagsfundur í Jónsbúð á morgun kl 20.00
Video frá ferð sem farin var með fatlaða í vor ásamt video frá björgun úr Steinsholtsá síðasta laugardag.

Einnig verður rætt hvert fara á í ferð milli hátíða.

Boðið verður uppá skonsur, kökur og kaffi.

 

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Sunnudagurinn 6. desember kl 13:00 – Jónsbúð

04.12.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Eins og talað var um á síðasta fundi var ákveðið að breyta dagsetningunni á „fundinum“ þar sem við bjóðum öllum sem komu með okkur í Ferð með fatlaða í vor. Venjulega hefur þessi fundur verið seinnipart mánudags þann dag sem við höfum verið með félagsfundinn okkar í desember.

En eins og var rætt á síðasta fundi, var ákveðið að breyta þessu og var ákveðið að bjóða þeim núna á sunnudaginn 6. desember kl 13:00 í Jónsbúð.
Að vanda bjóðum við uppá heitt súkkulaði, smákökur og skonsur :) Einnig verður sýnt myndband sem tekið var upp í ferðinni.

Í lokin langar okkur að biðja þá sem mögulega geta mætt fyrr og aðstoðað við að hita upp súkkulaði og gera allt klárt að mæta um 12 leytið. Það væri mjög vel þegið þar sem það þarf að raða borðum, hita súkkulaði, hella uppá kaffi og bara hafa allt klárt :) 

Hægt er að hafa samband við Helgu Björg í s. 699-8955 eða Gísla í s. 863-0071.

Hlökkum til að sjá ykkur næsta sunnudag kl 13:00 í Jónsbúð!! Endilega látið þetta berast! :)

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Félagsfundur Vesturlandsdeildar 9. nóvember

06.11.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Mánudaginn 9. nóvember verður félagsfundur í Jónsbúð sem þú vilt ekki missa af!!!!
Emil frá Arctic Trucks mætir og ætlar að sýna okkur myndir og segja okkur frá Suðurpólsferðinni sem farin var síðasta vetur.

Það er mæting kl 20:00 eins og venjulega.

Hlökkum til að sjá sem flesta! Höfum heyrt að þetta sé virkilega flott myndasýning!

Kveðja
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

Bjórkvöld næsta föstudag

14.10.2009 by Guðlaugur Hrafnsson

Föstudaginn 16. október ætlum við að hafa bjórkvöld á Kirkjubraut 11.
Það er ekki alveg búið að negla niður tímasetninguna en það verður líklega í kringum 21:00.

Það verður eitthvað af bjór í boði og vonumst við auðvitað til að sjá sem flesta félagsmenn og maka :)

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kv.
Stjórn Vesturlandsdeildar

Filed Under: Vesturlandsdeild

  • « Previous Page
  • 1
  • 2
  • 3
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.