Vel heppnaðri landgræðsluferð Umhverfisnefndar í Þjórsárdal er nú lokið. Tíu manns mættu í ferðina á fjórum
flottum jeppum. Veðrið lék við okkur og við nutum fegurðar haustdagsins. Unnið var að nýju tilraunaverkefni í samstarfi við starfsfók Hekluskóga. Tínt var fræ af trjám úr Búrfellsskógi, en það er einn elsti skógur á svæðinu, fræin fara síðan í spírun sem vonandi gefur góða raun og sýnir sig í fjölda plantna síðar. Fræsöfnun dagsins var vel viðunandi, en ekki var hægt að tína öll þau fræ er fundurst þar sem sum þeirra voru ekki enn fullþroskuð. Í lok dags var komið við á tjaldstæðinu við Sandártungu, þar sem boðið var uppá grillaðar pylsur og góðgæti. Í lok ferðarinnar var farið að landgræðslusvæðum þeim sem Ferðaklúbburinn 4×4 hefur haft aðkomu að í Núpsskógi og Þórðarholti. Þar var gengið um svæðið og afrakstur vinnu fyrri ára skoðaður. Það verður að segjast að afraksturinn er verulegur og gaman er að geta þess að svæðið er gjarnan sýnt sem velheppnað landgræðsluverkefni sem unnið er í samstarfi við áhugamanafélag
Umhverfisnefnd þakkar þátttakendum fyrir góðan dag og vel unnin störf.

ferðaklúbbsins 4×4 boðar til birkifræjaferðar í samstarfi við Hekluskóga. Blásið er til þessarar frábæru fjölskylduferðar laugardaginn 18.09.2010. Farið verður frá Shell Select við Vesturlandsveg kl.11.00 og keyrt að tjaldstæðinu Sandártungu í Þjórsárdal, þar sem við hittumst kl.13. Unnið verður við söfnunina í 3 til 4 klukkustundir og reynt verður að safna eins miklu af birkifræjum og hægt er. Á síðu Heklusóga er skýringin á því hversvegna þetta starf er svo mikilvægt, en þar stendur; „Hugmyndir um Hekluskóga eru að endurheimta birkiskóga og víðikjarr í nágrenni Heklu sem minnka myndu vikurfok í kjölfar gjóskugosa úr eldfjallinu“. Það hefur sýnt sig eftir gosið í Eyjafjallajökli hversu mikilvægt þetta uppbygginga- og ræktunarstarf er.