Ferðafrelsisfundur verður haldinn föstudaginn 20. Janúar kl 20:00. í Kaupangi v/Mýrarveg á Akureyri, í sal Sjálfstæðisflokksins.
Dagskrá fundarins er m.a.:
- Elín Björg Ragnarsdóttir, lögfræðingur. F4x4 fjallar um Hvítbók.
- Einar K. Haraldsson skotveiðimaður talar um þjóðgarða almennt, friðlýst svæði og verndun (takmörkun)
- Sveinbjörn Halldórsson Ferðaklúbbnum 4×4, Aðkoma frjálsra félagasamtaka að skipulagi hálendisins.
- Ingimar Árnason útivistamaður heldur fræðsluerindi um Leið norðan Dyngjufjalla (Vikrafellsleið)
- Andrea Þorvaldsdóttir, eða staðgengill, ferðamaður á hestum. Hestaferðir fyrr á tímum, nú og til framtíðar.
- Elvar Árni Lund. Skotveiði og útivistamaður. Talar um frelsi til skotveiða og framtíðarskipulag þjóðgarða og þjóðlendna á Íslandi.
Hver framsögumaður hefur 7 mínútur +/- 3 mínútur.
Félagar, mætið og fylgist með hvað er á döfinni í ferðafrelsismálum.
Sjáumst í Kaupangi Akureyri