Lokanir á spjallþráðum
Í samræmi við ákvörðun stjórnar Ferðaklúbbsins 4×4 hefur skrifaðgangi að spjallinu verið lokað fyrir aðra en félagsmenn. Eftir sem áður er áfram opið fyrir lestur á spjallinu, að Innanfélagsmálunum undanskildum. Skrifaðgangur að auglýsingaflokkum er óbreyttur, þ.e. opið fyrir alla með notandanafn að síðunni.
Þar sem að sjálfvirk samkeyrsla milli bókhaldskerfis og vefsins er í vinnslu, er hætt við að einhverjir kunna að missa þann aðgang sem þeir í raun ættu að hafa. Í því tilfelli er best að hafa samband við skrifstofuna í síma 568-4444 eða með tölvupósti á f4x4@f4x4.is og óska eftir að aðgangurinn verði lagaður. Vefnefnd hefur ekki nýjustu upplýsingar um hverjir hafa greitt félagsgjöldin og getur því ekki leiðrétt aðganginn án milligöngu skrifstofunnar.
Vefnefnd.
Endurvarpinn á Hlöðufelli virkur
Vaskir menn í fjarskiptanefnd lagfærðu endurvarpann á Hlöðufelli. Var það gert með aðstoð Norðurflugs, sem lagði til þyrilvængju.
Hlöðufell næst mjög víða á suður og vesturlandi. Endurvarpinn er á rás 58 en þeir sem hafa ekki rás 58 inni, þurfa að biðja verkstæði um að stilla hana inn.
Hægt er að lykla varpann, hann kemur inn með sekúndu móttöku ef „kallað“ er stutt á hann.
Textaleit á vefnum
Hér er farið yfir, í stuttu máli, hvernig hægt er að leita að texta á vef f4x4.is. Vefurinn er samsettur af ólíkum kerfiseiningum (modules). Leitin hefur ekki enn verið samhæfð á milli kerfanna. Leitin er þessvegna bundin kerfiseiningum.
- Leit innan spjallþráða og auglýsinga : Nota leitina inni á spjallsíðunni.
- Leit innan spjallþráða og auglýsinga : Nota leitina inni á spjallsíðunni.
- Leit innan mynaalbúms : Nota leitina sem er neðst á myndasíðunni („Advanced search“)
- Leit innan viðburðadagatals : Smella á dag í dagatali og velja leitina ofarlega á viðburðadagatalinu.
- Önnur leit, leit innan forsíðu vefs og vefsíða, sem eru aðgengilegar frá stiku vefins : Nota leitina efst uppi á skjánum, hægra megin, við hlið myndarinnar.