FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Árleg landgræðsluferð F4x4

02.06.2014 by Bergur Pálsson

Langræðslu og baggaferðir hafa verið árlegur og velsóttur viðburður ferðaklúbbsins, síðan á síðastu öld. Ferðin er að þessu sinni, eins og undanfarin ár, í Þjórsárdal, helgina 6-8. júní.

 

Við vekjum athygli á að hústrukkanefndin er með ferð í Þórsmörk, sömu helgi og ætti ekki að vera mikið úr vegi að renna við á báðum stöðum, fyrir þá sem það vilja.

 

Ferðartilhögun
Farið er í Þjórsárdal, á sama svæði og undanfarin ár. Ferðin er 6. júní – 8. júní. Fólki er í frjálst vald sett hvenær það kemur á svæðið en öll vinnan fer fram laugardaginn 7. júní. Þá er byrjað snemma dags og unnið vel fram að kaffileyti, eftir hádegi. Um kvöldið er grillveisla. Gisting og aðstaða á tjaldsvæðinu er frí fyrir þá sem taka þátt.

Sund
Eftir að vinnu lýkur á laugardag, síðdegis, er stefnt að sundferð í Árnes. Sjá frekari upplýsingar um laugina hér:
http://is.visiticeland.com/Leitarnidurstodur/Skodaferdathjonustu/arnes-swimming-pool

Tjalsvæðið
Þeir sem að taka þátt í ferðinni fá ókeypis tjaldstæði á tjaldstæðinu frábæra í Sandártungu (rétt norðan við brúna yfir Sandá, við Ásólfsstaði). Sjá frekari upplýsingar hér:
http://www.tjalda.is/thjorsardalur/

Grillveisla
Um kvöldið, laugardag, er grillveisla í boði umhverfisnefndar.

Skráning

Það er mikilvægt að skrá sig þar sem við þurfum að áætla magn fyrir grillveisluna.
Skráningarfrestur rennur út fimmtudagskvöld, 5. júní kl. 20:00.
Skráning er hafin í ferðina. Sjá hér:

https://old.f4x4.is/event/landgraedsluferd-umhverfisnefndar/

Umhverfisnefnd F4x4.

Filed Under: Fréttir, Umhverfisnefnd

Stikuferð umhverfisnefndar 2013

21.08.2013 by Bergur Pálsson

Stikuferð ársins verður  föstudaginn 30. ágúst til sunnudags 1. sept. 

Að þessu sinni verður stikað nokkurn veginn hring í kringum Heklu. Stikað verður frá syðra Fjallabak um Langvíuhraun að Dómadalsleið í Sölvahrauni. Þetta um 41 km. Ef tími vinnst til verður bætt og lagfærðar stikur á einhverjum leiðum þarna í kring.

Gisting

Klúbburinn býður upp á gistingu í Áfangagili, báðar nætur, fyrir alla sem taka þátt.

Grill og veitingar

Það verður grillað lamb og boðið upp á veitingar í sameiginlegum kvöldmat í Áfangagili, laugardaginn 31. ágúst.

Stikað er í samráði og samvinnu við heimamenn. Langvíuhraunið var stikað fyrir all nokkru og er þörf á að lagfæra og bæta við, á löngum köflum leiðarinnar.

Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina. Skráning og frekari upplýsingar, birtast hér á vefnum innan skamms.

Ferðin er opin öllum félagsmönnum.

Smelltu hér til að skrá þig

Filed Under: Umhverfisnefnd

Skráning hafin í uppgræðsluferð

04.06.2013 by Bergur Pálsson

Frítt tjaldsvæði og grillveisla á laugardagskvöldið, fyrir þáttakendur í uppgræðsluferð umhverfisnefndar í Þjórsárdal 7-9 júní, 2013.

Skráning er hafin hér á síðunni.

Hér er spjallþráður um ferðina.

Mikilvægt er að skrá sig og tiltaka fjölda þáttakenda, í hverjum bíl, vegna grillveislunnar.

Megin vinnan við uppgræðslu byrjar frá kl. 9:00 á laugardagsmorguninn og stendur til um 17. Eftir það er farið í sund í Árnesi.

Á laugardagskvöldið heldur Umhverfisnefnd glæilega grillveislu, á tjaldsvæðinu. Lambakjöt og rauðvín með.

Muna eftir sólgleraugum og hönskum (vegna fræ og áburðardreifingar).

fh. Umhverfisnefndar
Bergur 

Filed Under: Tilkynningar

Uppgræðsluferð í Þjórsárdal

30.05.2013 by Bergur Pálsson

Umhverfisnefnd Ferðaklúbbsins 4×4 er að skipuleggja uppgræðsludag í samstarfi við Hekluskóga.

Við tökum helgina 7.-9. júní til verksins, en aðal vinnudagurinn er laugardagurinn 8. júni.

Farið verður að Núpsskógi og Þórðarholti í Þjórsárdalnum, en þar hefur Ferðaklúbburinn 4×4 komið að uppgræðslu undanfarin ár.

Það verður frítt á tjaldsvæðið fyrir okkur, þessa helgi og grill í boði umhverfisnefndar, á laugardagskvöldið.

Nú er um að gera að taka helgina frá og gera ráð fyrir skemmtilegri vinnuferð í Þjórsárdalinn, en opnað verður fyrir skráningar þegar nær dregur.

Umhverfisnefnd

Filed Under: Umhverfisnefnd

Rammi og markmiðasetning næsta fasa vefþróunar

02.02.2013 by Bergur Pálsson

Rammi og markmiðasetning vegna næsta fasa í þróun vefsins

Síðasti fasi fólst einkum í endurbótum á deilda og nefndasíðum. Einnig voru nokkrar fyrstu grundvallar lagfæringar á myndaalbúmi.

Ramminn samanstendur af tilteknum markmiðum og tilteknum kröfum til breytinga. Ramminn er ekki ítarleg, formleg kröfulýsing. Samstarfsaðilar vilja þróa breytingarnar í samvinnu innan fyrirfram ákeðins kostnaðarramma, og skýrrar markmiðasetningar, frekar en út frá niðurnjörfaðri þarfagreiningu. Ennfremur sjáum við fyrir okkur ítranir á þessari vinnu til að taka inn nýjar hugmyndir og þarfir, frá notendum, þegar þar að kemur. Agile/Scrum style. Fyrir liggur hugmyndavinna, þarfagreining og hönnun vefnefndar og notenda fyrir flest atriði.

Megin markmið næsta fasa er að leiðrétta leiðrétta verstu galla á tilteknum hlutum vefsins. Ekki framtíðarlausnir, þær bíða næstu fasa. Ekkert „nice to have“ eða „gott væri að“. Eingöngu fullur fókus á beina galla og vankanta.

Til rammans heyrir einnig detail þarfalýsing, kostnaðaráætlun og tímarammi. Sér skjöl.

Markmið vegna forsíðu

F1, Forg 1
Smellur á mynd á forsíðu leiði notanda að viðeigandi efni
Nánar tiltekið : Stóra myndin í miðjunni fái inn virknina að ef smellt er á hana þá opnist viðeigandi efni eða albúm.Forrita módúla sem leyfa að ef smellt er á myndina þá opnast viðeigandi efni þar undir (myndaalbúm eða annað). Ef ekkert er stillt þá er viðburðadagatalið sjálfgefið.

F2, Forg 1
Random mynd í hornið uppi vinstramegin
Nánar tiltekið : Sama virkni og alltaf hefur verið beðið um, random úr myndaalbúmi. Sett inn í hornið uppi hægramegin. Þetta þarf að forrita til að hraði sé tryggður (vitað að Joomla módúll í þetta virkar ekki). Þegar smellt er á myndina þá opnast hún full screen í viðkomandi myndaalbúmi og hægt er að skða næstu myndir. Sjá kröfur til myndaalbúms.

F3, Forg 1
Skýrt aukinn hraði notendaviðmóts
Nánar tiltekið : Notendur upplifi sama hraða og á Facebook, hið minnsta. Engin bið eða hik. Nær til allra þátta, config, tuning, UI, hardware osfr.

F4, Forg 1
Staðfest að forsíðan virkar vel í snjallsíma
Nánar tiltekið : Þetta er vegna snjallsíma og spjaldtalva. Trygging á virkni vefs í slíku. Vitað að android er að mestu í lagi. þarf að prófa og staðfesta hina. Framkvæma betrumbætur ef þarf. Við lærum á forsíðunni hvað þarf að gera fyrir undirliggjandi síður. Mobile web gert síðar.

F5, Forg 1
Hægt verðði að taka við greiðslu með korti á vefnum.
Nánar tiltekið : Hægt sé við helstu viðskipti (skráning í klúbbinn osfr.  að  taka við greiðslu á vefnum. Notuð er greiðsluhirðing Borgunar. Notaðar eru þeirra vefsíðu (vefþjónustur ef ekki) og upphæð er alltaf þekkt fyrirfram. Lykill er skráður við skráningu (t.d. í ferð) ásamt kennitölu og einnig sem tilvísun með greiðslu (og kennitala). Þannig eru færslurnar alltaf rekjanlegar og hægt að raða þeim saman í Excel. Frekari útfærsla býður greiningar og prófana.

Greiðslupunktar:
Nýskráning í klúbbinn – og borga árgjaldið fyrsta árið.
Leigja talstöð   – og borga leiguna.
Skrá sig á árshátíð – og borga
Skrá sig í ferð   og borga

Markmið vegna spjallborðs

S1, Forg 1

Sama kerfi verður notað áfram.

S2, Forg 1
Ferskara „look and feel“
Nánar tiltekið : „Meira eins og ungir notendur vilja sjá hlutina“, „nýtískulegara“.“skemmtilegari litasamsetningu“. 

S3, Forg 1
Einföld heildaryfirsýn
Nánar tiltekið : Einföld heildarsýn yfir alla spjallþræði og virkni þvert á allt spjallið. 

S4, Forg 1
Jafn auðvelt og aðrir spjallvefir, t.d. jeppaspjall.is
Nánar tiltekið : Notendur upplifi spjallið hið minnsta jafn auðvelt og bjóðandi eins og t.d. jeppaspjall.is.

S5, Forg 1
Sjálfstætt aulýsingasvæði 
Nánar tiltekið : Hægt sé að hafa sér reglur og config varðandi virkni þess og þar með hægt að mæta þeim kröfum sem hafa verið settar fram um auglýsingarnar. Lykil atriði er að hægt sé að merkja auglýsingu „ekki til birtingar lengur“ og þar með er hún „tekin til hliðar“. Ekki eytt en ekki lengur í virkri birtingu.

S6, Forg 2
Endurskoðun skipulags forum-a (innihalds og skipulags), með einfaldleika og heildaryfirsýn að leiðarljósi. 
Nánar tiltekið : Farið yfir núverandi forum og yfirvegað hvort skiptingin sé góð og lýsandi fyrir umræður og hugsanlegar komandi forum á vefnum. Svigrúm fyrir ný forum. Þessi vinna er mest inn á við, fyrir vefnefnd.

S7, Forg 2
Þegar myndir eru settar inn sem viðhengi þá eru þær minnkaðar sjálfkrafa í skilgreinda max stærð.
Nánar tiltekið: Sama stærð og er max stærð myndaalbúms.

Markmið vegna myndaalbúms

M1, Forg 1
Byggjum áfram (í bili) á G2.

M2, Forg 1
Íslenska allar helstu aðgerðir
Nánar tiltekið : Ensk heiti hafa legið misjafnlega vel fyrir notendum. Sérstaklega gagnvart innsetningu mynda, skýringar við myndir og heiti á aðgerðum.

M3, Forg 1
Myndir opnast fullscreen eða í „Lightbox“.
Nánar tiltekið : Svipað og í Facebook eða Picasa) beint frá thumbnails. Of margar aðgerðir eða músarsmellir í dag, til að skoða mynd.

M4, Forg 1
Skýrt aukinn hraði notendaviðmóts
Nánar tiltekið : Við allar aðgerðir í myndaalbúmi. þar með talið upphleðslu mynda. Notendur upplifi sama hraða og á Facebook.

M5, Forg 1
Einfaldari og öflugari upphleðslu mynda.
Nánar tiltekið : Hér dugar ekkert annað en sami einfaldleiki og hraði á Facebook.

M6, Forg 2
Hægt að fá fram lista yfir notendur, í stafrófsröð, með nafni notanda. Við smell opnast myndaalbúmið.
Nánar tiltekið : Sama virkni og var. Annarsvegar listi af bókstöfum og hinsvegar listi af nöfnum eigenda albúma, sem byrjar á völdum bókstaf. (tveir smellir inn í albúmið). Ath. þó fyrst hvort hægt sé að nota leitina (ekki tekist vel til þessa).

M7, Forg 1
Tenging við Facebook, ný albúm tilkynnt.
Nánar tiltekið : Sjálfvirk uppfærsla á Facebook síðu klúbbsins við hvert nýtt myndaalbúm. Linkur inn á myndaalbúmið.

M8, Forg 1
Einföld, augljós, stýring helstu aðgerða
Nánar tiltekið : Stórir hnappar, efst á síðunni (eða til hliðar) þar sem hægt er að setja af stað fáar en mest notuðu grunn aðgerðir notkunar. Í dag eru aðgerðirnar út um allt.

M9, Forg 1
Flæðisstýring eða verkflæði gert einfaldara
Nánar tiltekið : Tengist kröfu um „einfalda, auglósa, stýringu helstu aðgerða“, að við þrjár aðgerðir „innsetningu“, „skoðun“, „eyðuingu“, „skýringar/merkingar“ og „skipulagningu“ sé verkflæði jafn einfalt og hugsanlegt er og alltaf í samræmi við ofangreint markmið. Eingöngu verði boðið upp á custom made hnappa sem leyfa nákvæmlega þessar aðgerðir, ekkert annað. Allt annað fjarlægt.

M10, Forg 1
Flóknari aðgerðir og valmöguleikar sem eru sjaldan notaðir fjarlægðir
Nánar tiltekið : Hin hliðin á einfaldleikanum, hafa inni bara það sem nauðsynlegt er.

Filed Under: Vefnefnd

Stefnumótunarvinna vefnefndar 2012

01.02.2013 by Bergur Pálsson

Stefnumótunin fór fram 24. nóvember 2012, fundur sem stóð mestallan laugardag.

Til staðar voru Bragi, Nanna, Sigurður og Bergur.

Dagskrá og lykilviðfangsefni:

Dagskrártillaga stefnumótunnar 2012:
  1. 9:00 Morgunkaffi og með því (BP)
  2. Hver er ég? (hringur um borðið)
  3. Framtiðarsýn : „Samskipta- og upplýsingamiðill félagsmanna F4x4“.
  4. Swot
  5. Unniði úr Swot. Niðurstöður settar í klasa og reitaðar.
  6. Úrvinnsla swot : wot.
  7. Hvenær hættum við að viðhalda núverandi vef, tæknilega?
  8. Hugarflug efnis og efnisöflunar fyrir núverandi vef.
  9. Hugarflug að aðgerðaplani fyrir hvernig við náum betur til deildanna um vefinn.
  10. (samhliða) Framkvæmdaáætlun tekin saman á grundvelli forgangsröðunar.
  11. (samhliða) Gildi nefndarinnar.
  12. Vinnureglur í vefnefndinni. Hvernig er samstarfið farsælast? …við hagsmunaaðila.
  13. Hver er framtíðarhögun vefanna, tæknilega? Mynd teiknuð. Lýsing……ljósmynd. (Bragi)
    14. Markera betur stefnu og hlutverk vefnefndar. Ábyrgð, tengsl við deildir, verklagsferlar klúbbsins
Hádegismatur og kaffi á viðeigandi tímapunktum. Ofangreint næst ekki allt.


Eftir kl. 14:00 : Vinnustofa um skipulag spjallsins. Leiðakerfi og model (tíminn eftir 14).

Niðurstaða fundar – fundargerð

Teknir voru fyrir liðr 1 til 6. Sjá niðurstöðu í viðhengi.
Á eftirfylgjandi fundi voru fleiri atriði kláruð, með þessari afgreiðslu:

7. Hvenær hættum við að viðhalda núverandi vef, tæknilega?
Niðurstaða : Gefum honum veturinn og það að verða án mikilla galla. Vinna við nýjan vef tekur 100% orku í heilt ár.

8.  Hugarflug efnis og efnisöflunar fyrir núverandi vef.
Niðurstaða : Féll inn í SWOT vinnuna og forgangsröðun úrvinnslu.

9. Hugarflug að aðgerðaplani fyrir hvernig við náum betur til deildanna um vefinn.
Niðurstaða : Féll inn í SWOT vinnuna og forgangsröðun úrvinnslu.

10. (samhliða) Framkvæmdaáætlun tekin saman á grundvelli forgangsröðunar.
Niðurstaða : Forgangsröðuninni fylgt.

11. (samhliða) Gildi nefndarinnar.
Niðurstaða : Ekki tekið fyrir.

 12. Vinnureglur í vefnefndinni. Hvernig er samstarfið farsælast? …við hagsmunaaðila.
Niðurstaða : Ekki tekið fyrir.

 13. Hver er framtíðarhögun vefanna, tæknilega? Mynd teiknuð. Lýsing……ljósmynd. (Bragi)
Niðurstaða : Hýsing á virtual vélum, þrískipt umhverfi (dev, test, prod). Nýr vefur, byggður á community hugsun, fari í hönnunarvinnu sumarið 2013.

Ákveðið að vinna úr niðurstöðum skv. forgangsröðun þeirra í stuttum sprettum þar sem öll áhersla er lögð á að klára og vinna í samvinnu við ákveðna félagsmenn.

Í viðhengi er niðurstaða stefnumótunarfundar vefnefndar í lok árs 2012. 

Bergur Pálsson, formaður vefnefndar

Filed Under: Vefnefnd

Skráðir notendur – tölvupóstfang

24.01.2013 by Bergur Pálsson

Vinsamlegast skráið ykkur inn á vefinn og farið yfir skráningarupplýsingar ykkar en það er gert með því að smella hér og smella síðan á Contact Info. Þar getið þið séð og breytt ykkar skráningarupplýsingum. 
Aðeins hafið aðgang til að breyta ykkar eigin upplýsingum. 
Það er sérstaklega mikilvægt að kanna hvort það tölvupóstfang sem við höfum skráð sé rétt.
Mörg ykkar hafa verið skráðir notendur í mööörg ár en það gæti verið að tölvupóstfangið ykkar eða aðrar upplýsingar séu úreldar. Þannig berast ykkur ekki nein skilaboð, sem og aðstoð við notendur getur verið erfiðari.
Baráttukveðjur frá vefnefnd.

Filed Under: Vefnefnd

Mikilvægur fundur um ferðafrelsi

11.02.2012 by Bergur Pálsson

Sjálfstæðisflokkurinn heldur á þriðjudag opinn  fund um ferðafrelsi á íslandi.

Fundurinn er í Valhöll 14. febrúar, klukkan 20:00.

Fjölmennum og styðjum þannig helsta baráttumál klúbbsins.

http://www.facebook.com/events/171431846300691/

Filed Under: Tilkynningar

Markmiðasetning Vef- og upplýsinganefndar 2011

10.02.2011 by Bergur Pálsson

Á síðasta félagsfundii, mánudaginn 7. febrúar, var kynnt markmiðasetning og framkvæmdaáætlun Vef- og upplýsinganefndar klúbbsins.

Markmið

  • Nýr vefur fyrir páska
  • Nýtt skipulag nefndarinnar, ritstjórn annarsvegar og tæknistjórn hinsvegar.

Filed Under: Vefnefnd

Liðið

05.01.2011 by Bergur Pálsson

.

Filed Under: Húsavíkurdeild

  • 1
  • 2
  • Next Page »

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.