FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hústrukkar – fundur 30. apríl kl 19.30

19.04.2013 by Arnþór Þórðarson

 Hústrukkanefndin boðar til fræðslu- og kynningarfundar í húsakynnum Ferðaklúbbsins 4×4, að Eirhöfða 11, þriðjudaginn 30. apríl, kl. 19:30.  Þeir félagar sem eru með bíla á númerum eru hvattir til mæta á þeim. 

Bifreiðastæði er að finna þegar ekið er inn Eirhöfðann fyrir norðan Ísaga.

Dagskrá:

1. Félagar kynna bíla sína.

2. Umræður um búnað hústrukka.

3. Hvítasunnuferð í Þórsmörk.

4. Starf nefndarinnar næstu mánuði.

5. Önnur mál.

Hústrukkanefndin:
Grétar Hrafn Harðarson s: 892 1480, Trausti Kári Hansson s: 894 9529, Viggó Vilbogason s: 892 3245.

Filed Under: Tilkynningar

Hústrukkanefnd stofnuð

18.04.2013 by Arnþór Þórðarson

Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 hefur skipað þriggja manna nefnd til að vinna að málefnum áhugafólks um hústrukka.  Hústrukkar teljast þeir fjórhjóladrifsbílar sem hafa svefnrými.  Nefndina skipa eftirtaldir:   Grétar Hrafn Harðarson ghh@lbhi.is, (formaður), Trausti Kári Hansson, halendingur@gmail.com og Viggó Vilbogason taeknivelar@taeknivelar.is.
Nefndarmenn voru einmitt kosnir til þessarar forystu á almennum fundi áhugafólks um hústrukka sem haldinn var á vegum Ferðaklúbbsins 4×4 í byrjun mars sl.  Áhugafólk er hvatt til að setja sig í samband við skrifstofu klúbbsins eða nefndarmenn og skrá sig á póstlista.
Hústrukkanefnd hefur þegar tekið til starfa og mun efna til almenns fundar í fundarsal Ferðaklúbbsins 4×4 á Eirhöfða 11 þriðjudaginn 30. apríl kl 19.30.  Þar verða fjallað um sitthvað tengt hústrukkum og auk þess rætt um fyrirhugaða hústrukkaferð í Þórsmörk um hvítasunnuna (18.-20. maí).    Allt áhugafólk um húsbíla með fjórhjóladrifi er velkomið á fundinn.
Stjórn F4x4

Filed Under: Tilkynningar

Sólskin í kortunum

22.03.2013 by Arnþór Þórðarson

23-31 mars

Filed Under: Tilkynningar

Ferð í Nýjadal – brottför kl 11

15.03.2013 by Arnþór Þórðarson

 

 Ákveðið hefur verið að efna til ferðar í Nýjadal um páskana.  Brottför er á skírdag kl 11.00 frá Stöðinni við Vesturlandsveg.  Komið til baka seint á páskadag. Sjá nánar á spjallþræði hér á síðunni.  Skráning fer fram hér á síðunni. Gert er ráð fyrir að bílar séu að lágmarki á 38 tommu dekkjum og að hver bíll hafi VHF talstöð og GPS tæki.  Ferðast verður út frá Nýjadal og komið þangað í náttstað á hverju kvöldi. Fjölskyldur sérstaklega velkomnar.  Skálagjald er 1500 kr/mann/nótt og verður innheimt á staðnum. frítt fyrir börn yngri en 13 ára.

Fararstjóri Arnþór Þórðarson s. 8201680 

Filed Under: Tilkynningar

Hústrukkar – fundur 5. mars

20.02.2013 by Arnþór Þórðarson

Þriðjudaginn 5. mars verður haldinn spjallfundur um húsbíla með fjórhjóladrifi (hústrukka). 

Fundurinn verður í húsnæði Ferðaklúbbsins á Eirhöfða 11 kl 20.00. 

Fundurinn er aðallega ætlaður eigendum slíkra bíla og öðru áhugafólki um ferðalög

á hústrukkum. 

Á fundinum verður ákveðið hvort stofna skuli hóp þeirra sem hafa þetta áhugamál.  

kveðja, Arnþór

Filed Under: Tilkynningar

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.