Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn mánudaginn 21.maí í sal klúbbsins að Eirhöfða 11, skemmu 3.
Fundurinn hefst kl 20:00. Rétt til setu á fundinum hafa allir skuldlausir félagar og skulu þeir framvísa gildu félagsskírteini.
Dagskráin er skv. lögum félagsins:
- Setning fundar og dagskrá kynnt.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
- Umræða um skýrslu stjórnar.
- Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
- Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
- Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
- Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
- Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
- Kjör Skoðunarmanna.
- Önnur mál.
- Fundarslit.