FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Um F4X4 / Ferðaklúbburinn / Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4

Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4

  1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á vefsvæði Ferðaklúbbsins 4×4, f4x4.is.
  2. Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara ef þörf þykir.
  3. Notkun vefsvæðisins skal vera í samræmi við hlutverk klúbbsins eins og það er skilgreint í lögum hans.
  4. Brot á skilmálum þessum getur valdið tafarlausri brottvikningu af vefsvæði klúbbsins og síendurtekin brot geta varðað brottvísun úr klúbbnum.
  5. Notendur skulu gefa upp rétt nafn og kennitölu við nýskráningu, sem og heimilisfang og tölvupóstfang. Skráningum sem ekki uppfylla þetta skilyrði verður tafarlaust eytt.
  6. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána öðrum aðgangsorð sitt, nota kennitölu eða félagsnúmer annarra, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn sem tilheyra öðrum.
  7. Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast eða reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Ferðaklúbburinn 4×4 ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
  8. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Þursar, sem hafa það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir og mun slíkum þursum verða meinaður aðgangur að síðunni í skemmri eða lengri tíma. Vefnefnd metur það hverju sinni hvort viðkomandi notandi sé að þursast eður ei og getur lokað aðgangi hans tímabundið. Stjórn Ferðaklúbbsins 4×4 í samráði við Vefnefnd ákveður hvort lokun skuli vera varanleg.
  9. Notendum skal vera ljóst að þeir bera sjálfir persónulega ábyrgð á öllu sem þeir skrifa eða senda á vefinn. Þeir skulu því haga notkun sinni á vefnum með þeim hætti að ekki sé brotið á friðhelgi persónu né einkalífi annarra. Vefnefnd mun fjarlægja slík skrif án nokkurs fyrirvara.
  10. Óheimilt er að nota upplýsingar af vefsvæðinu til að senda óumbeðnar fjöldasendingar.
  11. Auglýsingar frá notendum skulu vera á auglýsingasvæði, ekki í myndasafni eða spjalli. Fyrirtækjum er óheimilt að auglýsa á vefsvæðinu nema gegn greiðslu.
  12. Óheimilt er að birta efni á f4x4.is sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærumeiðandi efni.
  13. Forsvarsmenn Ferðaklúbbsins 4×4 munu eftir fremsta megni reyna að tryggja öryggi þeirra gagna sem geymd eru á vefsvæðinu. Klúbburinn ber þó ekki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun vefsvæðisins eða ef vefsvæðið er ekki aðgengilegt af einhverjum ástæðum. Einnig ber klúbburinn ekki ábyrgð á gögnum sem geymd eru á búnaði vefsvæðisins ef þau tapast eða skemmast.
  14. Ferðaklúbburinn 4×4 áskilur sér rétt til þess að nota allt efni sem notendur vefsvæðisins birta á vefsíðunum, s.s. myndir, texta eða skrif á spjallið, í þágu starfsemi Ferðaklúbbsins, hvort sem það er til birtingar annars staðar á vefsvæðinu, í félagsritum eða öðrum vettvangi í nafni Ferðaklúbbsins. Önnur nýting á efni því er birtist á vefsvæðinu er óheimil án heimildar stjórnar klúbbsins og höfunda viðkomandi efnis.
SAfetravel
Flugbjörgunarsveit

Virkar umræður

Packers take mental day to rest in middle of tough stretch (1)
Buccaneers Saints: Principal Matchups (1)
Titans endorse huge recipient Cameron Batson towards chaotic roster (1)
Nick Foles is proving to be Mr. Clutch (1)
Payments DT Phillips will deliver complicated thoughts again in direction of (1)
Ronnie Harrison latest to bring SEC attitude to the Browns (1)
Bills agree to sign cornerback Josh Norman (1)
Collection preview: Giants vs. Padres (1)
Will Bucs regret waiving Waddell (1)
5 many years later on, Lookouts glory life upon (1)

Ferðaklúbburinn á Facebook

F4x4
Artic Trucks
Shell Hliðarbar

RSS mbl.is – bílar

  • Nýskráningum bíla fækkar milli ára
    Nýskráningar bifreiða í marsmánuði sl. voru 7,8% færri en á sama tíma á síðasta ári. 1.075 bílar voru skráðir í mánuðinum samanborið við 1.166 í mars í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Bílgreinasambandsins.
  • 10 rafbílar á toppnum
    Það hefur framhjá fáum farið að sala á rafbílum árið 2020 var líflegri en áður. Fyrir liggur listi yfir tíu söluhæstu bílamódelin. Breytir það niðurstöðunni óverulega þótt tengiltvinnbílar séu taldir með.
  • Innkalla Cooper dekk
    Neytendastofu hefur borist tilkynning um innköllun á bíldekkjum frá framleiðandanum Cooper Tire & Rubber Company vegna hættu sem skapast getur í tengslum við öryggi bifreiða.
  • Samstarf um þjónustu vöru- og hópferðabíla
    Bílaumboðið Askja og Sleggjan hafa gengið til samstarfs um þjónustu við vöru- og hópferðabíla frá Mercedes-Benz, Setra og Unimog.
  • Bílasala dróst saman um 11,3% í mars
    Sala nýrra fólksbíla dróst saman um 11,3% í mars frá sama mánuði í fyrra. Alls voru 956 fólksbílar skráðir í mánuðinum, mest vegna samdráttar hjá bílaleigum. Hlutur rafbíla eykst enn.
Síminn á skrifstofu klúbbsins er 568 4444 og netfangið f4x4@f4x4.is Opnunartími skrifstofu er mánudaga – fimmtudaga frá 09:00-13:00 og föstudaga frá 10:00-12:00. Árgjaldið er kr. 7.000,-